22.11.1934
Efri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (2623)

83. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég og hv. 10. landsk. eigum. hér brtt. á þskj. 560. Ég þarf ekki að vera margorður um hana. En eins og nú standa sakir, finnst okkur ekki viðeigandi, að farið sé að lögbinda laun manna, og einkanlega þá þeirra, sem ef til vill hafa samningsbundin laun, sem ekki er hægt að breyta í fljótu bragði. Þar sem svo stendur á, að launamálan. er að ljúka störfum og skila till. sínum, og sennilega verður lagt fyrir næsta þing frv. til nýrra launal., þar sem laun allra embættis- og starfsmanna ríkisins verða samræmd, þá virðist, að þessu athuguðu, ekki ástæða til að fara að lögbinda nú laun einstakra manna. Við leggjum þess vegna til, að til bráðabirgða verði þessu þannig fyrir komið, að kennslumálaráðh. ákveði launin.

Ég get bætt því við, ef endilega á að knýja, það fram að lögbinda þessi laun, sem ég tel allt of há, að ég mun þá, ef þessi brtt. okkar hv. 10. landsk. verður felld, koma með brtt. við 3. umr. um niðurfærslu á laununum.