24.11.1934
Efri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (2629)

83. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Þorsteinn Þorsteinsson:

Við 2. umr. þessa máls hér í d. bar ég fram brtt. um það, að lögbinda ekki nú laun útvarpsstjóra. Ég taldi ekki rétt að lögbinda þessi laun fyrr en það yrði gert í launalögum, og nú hefir hæstv. atvmrh. lýst yfir því, að frv. til nýrra launalaga væri jafnvel væntanlegt á næsta þingi. Hefði því starfsmaður þessi setið við þann launasamning, sem hann hefir nú, þar til launamálið væri útkljáð; en till. þessi var felld. Þegar ég mælti fyrir brtt. þessari við 2. umr., tók ég það fram, að færi svo, að hún yrði felld, þá myndi ég bera fram brtt. við 3. umr. um lækkun á launum útvarpsstjóra, og það hefi ég efnt með brtt. á þskj. 577. Nál till. þessi samþykki, þá lækka laun þessa embættismanns um 1500 kr. frá því, sem þau eru sett í frv. Þó eru þau jöfn byrjunarlaunum biskups, 1000 kr. hærri en byrjunarlaun landssímastjóra og jöfn hámarkslaunum vegamálastjóra. Líti maður svo á það, að ekki er krafizt sérþekkingar af þessum starfsmanni, eða hefir ekki verið gert við þá einu veitingu, sem átt hefir sér stað á þessu starfi, þá verður varla með neinum rétti hægt að halda því fram, að þetta, sem ég legg til, séu of lág laun fyrir hann, a. m. k. ekki samanborið við þá embættismenn, sem ég hefi nefnt, sem allir þurfa að eyða fjölda ára og miklu fé til sérmenntunar sér. Auk þess líka þegar vafi getur jafnvel leikið á um það, hvort embætti þetta sé nauðsynlegt, en um nauðsynjaleysi þess hafa komið fram raddir frá mönnum nákomnum stofnun þessari. Eins og laun þessa starfsmanns hafa verið, þá hafa þau verið allt of há, að ég ekki tali um samanborið við laun samkv. launalögum. Hann hefir haft á 9. þús. kr. á ári, að viðbættum 2000 kr. fyrir eftirlit með viðtækjaverzluninni. Auk þessa hefir kona hans fengið greiddar á 5. þús. kr. á ári fyrir störf við útvarpið, svo raunverulega hefir útvarpsstjórinn tekið á 15. þús. kr. sem hrein laun frá þessari stofnun á ári.

Ég vildi nú leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hv. frsm. menntnm., hvort það sé álit n., að eftirlitið með viðtækjaverzluninni eigi framvegis að vera bundið við útvarpsstjórastarfið, og hvort þær 2000 kr., sem greiddar eru fyrir það, eigi að halda áfram að falla í hlut útvarpsstjórans.

Hæstv. fjmrh. brýndi okkur sjálfst.menn með því í gær við útvarpsumr., að við hefðum ekki komið ennþá með eina einustu till. til lækkunar á launum embættis- og starfsmanna ríkisins. Þetta var að sjálfsögðu órökstudd staðhæfing hjá hæstv. ráðh., en þar sem nú á næsta degi liggur fyrir till. til réttlátrar launalækkunar, ættu flokksmenn hans að samþ. hana.

Að síðustu skal ég taka það fram, að verði það úr, að hv. d. fallist á að lögbinda ekki laun útvarpsstjórans að þessu sinni, þá myndi ég geta fallið frá brtt. minni. Vildi ég því mælast til, að brtt. á þskj. 568 við 3. gr. frv. verði borin undir atkv. á undan till. minni.