13.12.1934
Efri deild: 60. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1984 í B-deild Alþingistíðinda. (2639)

124. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi

Magnús Guðmundsson:

Ég skil það af þeim umr., sem hér hafa farið fram, að það sé ákveðið, að vitabáturinn Hermóður verði látinn halda uppi ferðum fyrir Norður- og Vestur-Ísfirðinga, og mér skilst, að það eigi að láta hann gera það þvert á móti vilja héraðsbúa þar. Það liggur í augum uppi, að það er ekki hægt að fyrirskipa þeim að kosta neinn ákveðinn bát, og ef ríkisstj. ætlar endilega að hafa þar í förum bát án samþykkis sýslubúa, þá verður hún vitanlega að gera hann út sjálf. Mér þykir ákaflega undarlegt, að ekki skuli vera hægt að fá samkomulag um það, að ríkissjóður taki þátt í þeim rekstrarhalla, sem kynni að verða, ef hann sýndi sig að verða meiri með því að nota þetta skip heldur en það, sem héraðsbúar hafa hugsað sér að fá. Þetta er svo mikil stirfni og ósanngirni gagnvart þeim, sem hér eiga hlut að máli, að ég er alveg steinhissa á því, að stj. skuli leyfa sér að taka svona í þetta mál. Gagnvart sumum héruðum er farið þannig að, að það er hlaupið undir bagga með kaup á skipum og veittur styrkur í því skyni, eins og líka hefir verið venja, en svo er öðrum héruðum aftur á móti neitað um slíkt, og þeim er sagt að nota skip, sem héraðsbúar hafa reynt áður, með nákvæmlega sömu skilyrðum og nú er talað um, og ekki séð sér fært að nota, vegna þess, hvað það er dýrt í rekstri. Ég get þess vegna ekki séð, að í rauninni séu nokkrar líkur til þess, að hlutaðeigandi sýsla taki að sér að halda uppi ferðum með Hermóði.