13.12.1934
Efri deild: 60. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1985 í B-deild Alþingistíðinda. (2641)
124. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi
Jón Auðunn Jónsson:
Ég vil bara leiða athygli hv. d. að því, hvað taki þá við, ef sýslun. Norður-Ísafjarðarsýslu sér sér með engu móti fært að leggja út í að láta Hermóð annast þessar ferðir með þeim styrk, sem ákveðinn hefir verið til þess af meiri hl. samgmn. á fundi, sem þó vantaði marga af nm. á. Þá verða engar ferðir þarna, nema ríkisstj. hlaupi undir bagga og laki að sér að sjá um þær. Og ég hygg, að það yrði að öllu leyti dýrara og án efa margfalt minna notað, ef ríkisstj. neyddist til þess að halda úti skipi þarna vestra til þess að annast póstflutningana eingöngu.
Það vita allir, að Norður-Ísfirðingar eiga réttlætiskröfu á því að hafa einhverjar samgöngur umfram póstferðir, þegar litið er til þess, að aðrar sýslur hafa undanfarið fengið hlutfallslega margfalt meiri styrk til samgöngubóta á sjó og landi heldur en Norður-Ísfirðingar, og allir vita, að erfiðleikarnir eru langmestir þar hvað samgöngur snertir.
Hér er um slíkt lítilræði að ræða, að mér finnst, að það sé varla, að maður geti fengið sig til þess að deila um þessa hluti, svo sjálfsagðar virðast þær kröfur, sem fram hafa komið frá Norður-Ísfirðingum, og svo í hóf stillt.
Það er óhætt að segja, að þeir hafi miklu minni styrk frá ríkinu, þó að þetta allt verði uppfyllt, en allar aðrar sýslur landsins undantekningarlaust, en eiga þó erfiðasta aðstöðu.
Eins og hér hefir áður verið tekið fram, þá hefði ég gert mig ánægðan með það, ef ráðh. hefði viljað taka það liðlega í þetta mál, að þvertaka ekki fyrir það, eins og mér skilst, að hann hafi gert, að ríkissjóður hlypi undir baggann með sýslunni, ef rekstrarhalli yrði mjög mikill. Ég er sannfærður um það, að ef til þess kemur, að ríkissjóður þarf að gera út skip þarna, sem yrði þá að sjálfsögðu falið skipaútgerð ríkisins og gert á kostnað strandferðanna, þá yrði það bæði dýrara og óhentugra. Það er fyrirfram vitað, að þeir flutningar geta ekki orðið eins hagkvæmir, ef stilla á í hóf með kostnaðinn, og ég er hræddur um, að kostnaðurinn geti orðið mikill, og að tekjurnar geti líka orðið minni heldur en þær annars gætu orðið, því að ég get vel hugsað mér, að það gæti komið stífni í héraðsbúa, sem ég er þó alveg á móti að kæmi fram, og að þeir mundu þá kannske sniðganga þennan bát og reyndu að notast við einhverjar hlaupaferðir, eins og oft hefir verið, til þess að annast flutninga sína, meira en vera ætti, bæði þeirra vegna sjálfra og ríkissjóðs.