01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1996 í B-deild Alþingistíðinda. (2661)
104. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
Pétur Halldórsson [óyfirl.]:
Ég skil ekki í því, hvers vegna hv. þm. Barð. segir, að þetta frv. gefi ekki tilefni til þess, að hér sé rætt um, að takmarkaðir séu möguleikar til þess að setja á stofn síldarverksmiðjur. (BJ: Nauðsynlegar verksmiðjur verða aldrei bannaðar). Ef maður nú ber saman 1. og 2. gr. frv., þá sér maður, að í l. gr. er bannað að reisa nýjar verksmiðjur eða að stækka þær, sem fyrir eru, nema með leyfi ráðh., og svo er í 2. gr. ákvæði um það, að ríkissjóður hafi jafnan forkaupsrétt að þeim verksmiðjum einstakra manna, sem nú eru til í landinu. Það er beinlínis gefið í skyn með þessu, að einstaklingum sé ekki ætlað að skipta sér af þessum málum, því að með þessum ákvæðum er ríkinu einu ætlað að sjá um, að nóg sé af síldarbræðsluverksmiðjum á hverjum tíma. Ég sé ekki betur en að með þessu sé verið að stefna að því, að ríkið eigi allar síldarbræðslustöðvar í landinu, og að enginn annar en það setji á stofn slíkar verksmiðjur. (BJ: En 5. gr.?). Já, það er rétt, að það má selja þær aftur, þegar eins stendur á og þar segir.
Ég undrast það mjög, að þessir hv. flm. þessa frv. skuli ekki hafa nefnt með einu orði það atriði, sem fyrir mér var aðalatriðið, þegar ég tók til máls. Í grg. þessa frv. er ekki nefnt með einu orði, að markaður fyrir þessar afurðir sé svo þröngur, að þess vegna þurfi að takmarka framleiðsluna. Ef svo væri, þá væri málið á allt öðrum grundvelli. Nú segir hv. 1. flm. frv. í annari ræðu sinni, að menn megi fara að vara sig á því, að markaður fyrir þessar afurðir sé svo þröngur, að við getum ekki selt þær, nema með því móti að taka vörur í staðinn. Ég vil halda því fram, að ef við getum flutt til Þýzkalands alla þessa framleiðslu, þá þurfi ekki að lasta þann markað, þó að þau viðskipti verði að byggjast á vöruskiptum, því að við getum áreiðanlega fengið frá Þýzkalandi vörur, sem okkur eru nauðsynlegar og fullnægja okkar þörfum. Þess vegna megum við óska þess, að hafa sem mesta kaupgetu þar og sem mest að selja þangað. Ég á þess vegna bágt með að trúa því, að þær ástæður séu fyrir hendi, að hér sé um að ræða vöntun á markaði fyrir þessar vörur, og þar sem líka hv. fyrsti flm. frv. hefir lýst því yfir, að hægt hafi verið að selja talsvert meira af þessari framleiðslu en gert hefir verið.
Hv. flm. segir, að það sé eðlilegt, að sjálfstæðismenn taki þessu frv. svona, af því að þeir vilji hafa allt eftirlitslaust og vilji þess vegna láta byggja nýjar verksmiðjur alveg út í bláinn, án þess að nokkur þörf sé fyrir þær. Ég veit nú satt að segja ekki, hvaðan hv. þm. kemur þessi vizka. Við sjálfstæðismenn bendum á það, að þegar möguleikar eru til þess, eins og í þessu tilfelli, að hagnýta meira af gæðum náttúrunnar fyrir landsmenn en gert hefir verið, þá eigi vitanlega að skapa skilyrði til þess að nota þau gæði, og sérstaklega þegar eins stendur á og hér, þar sem hér er um framleiðslu að ræða, sem er ung á okkar landi og, að því er virðist, á mikla framtíð fyrir höndum. Ég verð því að segja það, að á meðan svo hagar til í þessum efnum, að nóg er af síld í sjónum og nóg fólk til þess að veiða hana og vinna við hana og nógu margar bræðslustöðvar til þess að vinna úr henni og ennfremur góður markaður fyrir hana, þá hlýtur það að vera verkefni hv. sjútvn. og þingsins í heild sinni, að stuðla að því, að skapa möguleika til þess, að hægt sé að veiða meiri síld en gert hefir verið. Alþ. virðist hafa ríka ástæðu til þess, eins og nú er mikið atvinnuleysi í landinu, að stuðla að því, að atvinna aukist í landinu, en ekki að hjálpa til þess með ráðstöfunum eins og farið er fram á í þessu frv., að gerðar verði, að atvinna landsmanna minnki. Ég benti á það í fyrri ræðu minni, að ef ekki væri hægt að fullnægja þessari framleiðsluþörf með skipastóli Íslendinga sjálfra, hvort þá væri ekki vegur til þess að bæta úr þessu með því að láta erlend skip veiða í verksmiðjurnar þessa 2 mánuði ársins. Þegar svona mikil þörf er fyrir atvinnu og fyrir aflann eins og hér er fyrir hendi, þá megum við helzt ekki láta stranda á því, að skip vanti til þess að veiða síldina. Af þessum ástæðum benti ég hv. sjútvn. á það, hvort ekki mundi vera hægt, ef löggjöfin verkar þannig, að hún stendur í vegi fyrir því, að hægt sé að nota útlend skip í þessu skyni, að lagfæra þetta svo fyrir næsta sumar, að veiðiskortur þurfi ekki að hindra það, að menn fái þá atvinnu við þessa framleiðslu, sem kostur er á. Þetta er vitanlega aðalatriði málsins.