01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1997 í B-deild Alþingistíðinda. (2662)

104. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Ólafur Thors:

Ég er nú raunar búinn að taka það fram, sem mér finnst máli skipta. Þó vil ég í tilefni af orðum hv. þm. upplýsa, að á því er enginn vafi, að ef skipastóll Íslendinga stundaði síldveiðar yfirleitt, mundi afli hans fullnægja margfaldri þörf þeirra verksmiðja, sem nú eru til og verða næsta sumar. Ræður hv. flm. hafa bent á það, að þeim er þetta ekki ljóst. Það má t. d. nefna, að af 40 togurum stunduðu aðeins 7 síldveiðar síðastl. sumar. (FJ: Hvað margir Kveldúlfstogarar?). Fjórir. — Og væri nú bætt við 30 togurum og meðalafli þeirra áætlaður 15 þús. mál, sem er ekki hátt reiknað, þá væru þar komin 450 þús. mál í viðbót við aflann, sem nú fæst, og nemur það því sem næst helmingi allrar þeirrar síldar, sem allar verksmiðjurnar koma til með að geta tekið á móti næsta sumar, þó að lokið verði byggingu þeirrar, sem nú er verið að reisa. — En mér þykir trúlegt, ef á að fara að sporna við eðlilegri þróun í þessum efnum, að farið verði að setja innflutningshöft á skip og banna byggingu þeirra hér á landi, fyrst það er staðreynd, að hér er til skipastóll, sem gæti fullnægt tvöfaldri þörf þeirra síldarbræðsluverksmiðja, sem til eru og verða næsta sumar. En það breytir nokkuð afstöðu til þessa máls, hvort litið er á það með augum hv. fyrsta flm. eða hv. meðflm. hans. Hv. fyrsti flm. telur aðaltilganginn þann, að tryggja síldarbræðslunum nóg úrvinnsluefni, og að þar til þurfi afskipti hins opinbera. En fyrir mér er það aðalatriðið, að framboð og eftirspurn fái sjálf að leita að sínu eðlilega jafnvægi. Og ég hefi áður fært rök að því, að það er þjóðarnauðsyn, að höfð verði hliðsjón af horfum á aflasölu á öðrum sviðum, í sambandi við þessi mál. — Ég sé svo ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta að sinni.