28.11.1934
Efri deild: 49. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1842 í B-deild Alþingistíðinda. (2681)
97. mál, óskilgetin börn
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Þetta frv. er komið frá allshn. Nd., og allshn. þessarar d. hefir orðið ásátt um að mæla með því, að það næði fram að ganga óbreytt. Aðalefni frv. er að tryggja rétt mæðra til meðlags af hendi barnsföður á greiðari hátt en lög mæla nú fyrir. Það hefir oft gengið í miklum vafningum milli þeirra, sem með þessi mál hafa farið, að fá þessi meðlög fljótlega greidd, en þetta frv. mun bæta úr þeim ágöllum, sem á núgildandi löggjöf eru.