01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1842 í B-deild Alþingistíðinda. (2686)
119. mál, tollundanþága fyrir tunnuefni og hamp
Flm. (Guðbrandur Ísberg):
Ég hefi leyft mér að flytja frv. þess efnis, að allt efni í tunnur, sem ætlaðar eru til umbúða um innlenda framleiðslu, skuli undanþegið innflutningstollum. Við notum að meðaltali um 200 þús. síldartunnur á ári, og er meginið af þeim flutt inn, en lítið eitt smíðað í landinu sjálfu. Nú er það svo, að helmingur af tunnuverðinu er smíðiskostnaður, efnið í tunnurnar kostar um kr. 2.50 án tolls, en fullgerðar kosta tunnurnar um 5—6 kr. Með því að smíða tunnurnar í landinu gætum við þannig sparað um ½ millj. kr., sem nú gengur út úr landinu. Til skamms tíma voru hér og til í landinu 2 tunnuverksmiðjur, sem hefðu getað afkastað því, sem við þurfum af síldartunnum. En önnur þeirra er nú brunnin, og veit ég ekki, hve fljótt hún tekur til starfa aftur. Hin verksmiðjan er hinsvegar albúin að taka til starfa, hvenær sem er, en á því hefir staðið undanfarið, að það þætti tiltækilegt kostnaðarins vegna. Þessi verksmiðja er á Akureyri, og hefir bæjarstj. þar ákveðið að styðja þennan iðnað eftir föngum. Er búizt við, að verksmiðjan myndi geta afkastað um 25 þús. tn. í vetur, og er að því mikil bót í atvinnuleysinu, sem þar er eins og alstaðar annarsstaðar. Hefir verið stofnað nýtt félag utan um verksmiðjuna, sem sumpart er skipað útgerðarmönnum, sem um leið verða kaupendur að tunnunum, sem verksmiðjan framleiðir. Er auðsætt, að hér er um atvinnurekstur að ræða, sem rétt er að hlúa að, og til þess er frv. þetta fram borið.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta. Ég vænti þess, að málinu verði vel tekið af hv. d. Vil ég leyfa mér að stinga upp á, að málinu verði vísað til iðnn. að umr. lokinni.