14.11.1934
Neðri deild: 36. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1847 í B-deild Alþingistíðinda. (2705)

119. mál, tollundanþága fyrir tunnuefni og hamp

Pétur Ottesen:

Ég vil benda á, að ég tel það orðið vafasamt fordæmi að kveða svo á í l., að hafnarsjóðir skuli gefa eftir hafnargjöld af ákveðnum vörutegundum, þó að ríkissjóður veiti eftirgjöf á innflutningstollum. Ef hér verður um mikilsverðar atvinnubætur að ræða á tveim eða þrem stöðum, skil ég ekki annað en að hlutaðeigandi kaupstaðir meti þær svo mikils, að þeir gefi þessum atvinnurekstri hafnartolía eftir af fúsum vilja. En ég er því andvígur að taka upp það fordæmi að ráðast á tekjuöflunarlindir hafnarsjóða, sem flestir eiga í vök að verjast. Hinsvegar efast ég ekki um, þar sem hér er um mikilsverða atvinnu að ræða, að kaupstaðirnir muni veita atvinnurekstrinum þennan stuðning eða annan. Mun ég því greiða atkv. gegn brtt.