19.10.1934
Efri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1851 í B-deild Alþingistíðinda. (2730)
75. mál, varðskip landsins og skipverja á þeim
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Þetta frv., sem meiri hl. sjútvn. flytur hér, er í raun og veru ekki alveg nýtt, því að á síðasta þingi var að efni til flutt samskonar frv. af tveimur núv. hæstv. ráðh. og hv. þm. Vestm. Málið fór þá til fjhn., ef ég man rétt, og fékk þar þær undirtektir, að n. var nokkurnveginn einhuga um, að sú breyt. á l., sem frv. fór fram á þá, og var sama efnis og sú breyt., sem farið er fram á í þessu frv., ætti að ná fram að ganga.
Að þessu frv. standa, eins og grg. ber með sér, Stýrimannafélag Íslands, Vélstjórafélagið og Sjómannafélag Rvíkur. Öll þessi fél. vilja veita allan sinn stuðning til þess, að þetta mál megi ná samþykki, þótt hagsmunir háseta og kyndara komi hér ekki beint til greina. Ég vil geta þess hér, að hæstv. dómsmrh. hefir lýst sig samþ. þeirri breyt., sem í frv. felst. Ég hefi og ráðgazt um þetta mál við framkv.stjóra Skipaútgerðar ríkisins, og þær breyt., sem hann óskaði eftir við frv., voru teknar til greina. Allir aðilar, sem mest hafa með þessi mál að gera, eru frv. samþykkir.
Ég vil gera nokkra grein fyrir aðalbreyt., sem farið er fram á. Í upphaflegu varðskipalögunum, sem sett voru 1928, var svo til ætlazt, að stýrimenn og vélstjórar fengju fastákveðin laun í launal. Ég var dálítið riðinn við þá lagasetningu, því að sjútvn. Nd., sem ég þá átti sæti í, hafði málið til meðferðar. Mér var því kunnugt um, að andi þeirrar löggjafar var sá, eins og sjá má af þeim ummælum, sem frv. fylgdu, að það ætti að tryggja fasta starfsmenn við varðskipin, sem ynnu þar eins lengi og heilsa og starfskraftar leyfðu. Þarna myndaðist starfsmannastétt, sem ríkið átti að hafa eins mikið gagn af og unnt væri, og var því talið rétt að fastákveða laun þessara manna og veita þeim þann rétt, sem embættismönnum ríkisins er veittur að lögum. En í framkvæmdinni hefir þetta orðið á allt annan veg. Það hefir engin festa myndazt í starfskiptunum á þessum skipum, nema að örlitlu leyti. Það hafa orðið skipstjóra- og vélstjóraskipti á þessum skipum. Sumir starfsmannanna hafa séð sér leik á borði að ná í önnur og betri störf; sett hefir verið út á starf sumra og þeir því ekki átt kost á að setjast í þessi embætti. Ég vil og geta þess, að eitt hefir enn komið í ljós á síðari árum þessum málum viðvíkjandi, er taka þarf til athugunar. Þegar l. voru sett, voru varðskipin 3 eins og nú, og ætlazt til, að starfsmennirnir hefðu á þeim fullkomið ársstarf. En nú er ástandið þannig, að fjárhagur ríkissjóðs hefir mjög takmarkað úthald skipanna, og þeim hefir verið lagt upp til skiptis um misjafnlega langan tíma. Tvö síðustu árin hefir ekki verið að jafnaði nema eitt varðskip í gangi. Fjárhagur ríkissjóðsins hefir ekki leyft meira. Yfirmönnunum hefir að vísu verið haldið á föstum launum við skipin, ef þeir hafa ekki þurft að leysa menn á öðrum skipum af hólmi vegna sumarleyfa o. fl. þ. h. Ein ástæðan enn til breyt. er sú, hve mikið misræmi hefir skapazt milli vélstjóra og stýrimanna á varðskipunum.
Í upphafi var reynt að ganga svo frá þessu máli, að launin yrðu sem allra líkust. Mismunurinn var ekki ýkjamikill í fyrstu, en við það, að dýrtíðaruppbót á launum embættismanna lækkaði svo ört sem raun varð á, lækkuðu líka laun þessara manna, og mismunurinn á launum þeirra og annara farmanna varð allverulegur. Þetta má sjá af grg. frv. frá í fyrra, og þetta er óbreytt nú frá því, sem það var þá. Ég ætla að lesa upp nokkrar tölur, sem sýna þann mismun, sem nú er á launum stýrimanna, sem vinna hjá Eimskipafél. Íslands og strandferðaskipunum, og svo aftur þeirra, sem vinna á varðskipum ríkisins. 1. stýrimaður á varðskipi hefir 95 kr. lægra kaup en stéttarbræður hans á skipum Eimskipafél. og strandferðaskipunum. 2. stýrimaður hefir 52 kr. lægra og 3. stýrimaður 16 kr., en það má geta þess, að laun hans hafa hækkað dálítið frá því, sem þessar tölur segja, en á Eimskipafélagsskipunum og strandferðaskipum ríkisins hefi ég ekki athugað, hve mikill munurinn verður, þegar sú hækkun er tekin til greina. Eftir 12 ára þjónustu er mismunurinn orðinn 106 kr. hjá 1. stýrimanni 104 kr. hjá öðrum stýrimanni, og 27 kr. hjá 3. stýrimanni, en hans laun hafa hækkað nú, eins og áður er getið. Ef við tökum svo vélstjórana, þá er þar um öllu meiri mismun að ræða. Á byrjunarlaunum 1. vélstjóra er mismunurinn 135 kr., 2. vélstjóra 133 kr., og 3. vélstjóra 98 kr., en eftir 12 ára þjónustu er mismunurinn hjá 1. vélstjóra orðinn 185 kr., 2. vélstjóra 125 kr., og 3. vélstjóra 90 kr. Þetta út af fyrir sig hefir valdið því, að mönnum, sem á varðskipunum vinna, finnst, að þeim sé gert mjög rangt til, þar sem líka ríkið, sem hefir þá í þjónustu sinni, veitir þeim ekkert tryggari atvinnu heldur en verzlunarflotinn sínum mönnum. Þessi gífurlegi mismunur má ekki eiga sér stað, og fjhn. Nd. virtist vera á sama máli um, að það mætti ekki svo vera framvegis.
Það, sem hér er farið fram á, er að laun þessara manna séu nákvæmlega í samræmi við laun stéttarbræðra þeirra á verzlunarskipunum, og þeir megi hér eftir semja um laun sín og þeirra félag fyrir hönd þeirra, á sama hátt og aðrir stéttarbræður þeirra, þannig að launin séu nákvæmlega þau sömu hjá báðum, með þeim breyt., sem þau kunna að taka. Þetta er í raun og veru kjarni frv.
Ég skal nú nefna þær aðrar breyt., sem gerðar hafa verið á l. 1928 og þeim breyt., sem þau tóku með l. frá 1932. Þetta frv. hefir verið steypt upp úr þessum l. báðum. Því einu hefir í raun og veru verið breytt, sem þeir, er hafa samið þetta frv., töldu, að myndi stangast við greinina um launakjörin, ef aðrar greinar frv. væru óbreyttar. Það, sem raskast frá eldri l., er þá aðallega þetta tvennt, að laun starfsmanna ríkisins á varðskipunum færist upp í það, sem nú er á verzlunarskipunum og strandferðaskipunum, og að uppsagnarfrestur sé bundinn nákvæmlega sömu ákvæðum hjá báðum. Ég skal nú geta þess, að skipstjórarnir eru teknir með í þessu frv., og var það gert samkv. ósk þeirra manna, sem töldu ranglæti að skilja skipstjórana eina eftir, ef laun hinna starfsmanna skipanna yrðu hækkuð. Við, sem flytjum frv., teljum, að það skipti svo litlu máli, þó að þeir verði teknir með, enda munar það ekki svo ýkjamiklu, þó að þeir séu á sama launafyrirkomulagi og skipstjórar á strandferðaskipunum, að frádreginni strandferðauppbót. Ég skal taka það fram strax, til glöggvunar, að þá samninga, sem gert er ráð fyrir að gerðir verði við þessa menn, er ætlazt til, að útgerðarstjórnin geri við stéttarfélag þeirra, og gilda þeir jafnt fyrir verzlunarskip, varðskip og strandferðaskip. Skipstjóri gerir svo starfssamning í umboði útgerðarstj. við starfsmenn skipanna, framkvæmir lögskráningu á mönnum og ræður alla menn á skipið, nema yfirvélstjóri ræður aðra vélstjóra, kyndara og aðra starfsmenn í vél.
Þá er og það nýmæli í þessum l., að gert er ráð fyrir, að kafarar skuli fylgja skipunum, og er komin sú hefð á, að svo sé. Ég skal gefa þær upplýsingar, að reynslan hefir sýnt, að varðskipunum, sem eru samhliða björgunarskip. er óumflýjanlegt að hafa kafara, fyrst og fremst við allar björgunartilraunir, svo og þegar framkvæma þarf bráðabirgðabotnskoðun o. fl., og er því nauðsynlegt, að a. m. k. einn maður verði sem fastur starfsmaður við þetta á hverju skipi. Í mörgum tilfellum getur þetta verið mikill ávinningur fyrir landhelgissjóð, því að fyrir smá viðvik, eins og t. d. að skoða botn í skipi eða skera botnvörpu úr skrúfu, fást oft álitlegir peningar.
Í 8. gr. l. þessara eru einnig nýmæli, þar sem gert er ráð fyrir, að af þeim hluta, sem rennur til skipverja í björgunarlaun, megi skipstjóri ákveða einhvern hluta til þeirra manna, sem mest hafa lagt sig í hættu við björgunina. Þetta er í nákvæmu samræmi við siglingalögin, að verðlauna skuli að einhverju þá menn, sem leggja sig sérstaklega í hættu við björgun. Þetta getur einnig orðið til þess að minnka það ósamræmi, sem er í úthlutun björgunarlauna, þegar þau eru miðuð við laun hvers eins.
Ég hefi nú hér á undan skýrt nokkuð það, sem nýtt er í þessu frv., svo að mönnum geti verið ljóst, hvað hér er um að ræða. Ég býst við, að einhverjir muni ef til vill gera aths. við þetta, sem hér hefir verið flutt fram, og mun þá gefast tækifæri til andsvara, ef svo verður, en ég vil að lokum geta þess, að ég er ekki ugglaus um það, verði þessi launakjör látin standa framvegis óbreytt frá því, sem verið hefir, að þá séu ekki alllitlar líkur til þess, að hinir hæfustu og beztu menn, sem nú eru í yfirmannastöðunum á varðskipunum, leiti sér að atvinnu annarsstaðar, þar sem betur er borgað og vinnan tryggari, að þeirra dómi, en á varðskipunum. Ég get upplýst þessa hv. d. um það, að vélstjórunum á Ægi, sem er eina skip okkar stærri skipa, sem hefir dieselvél, en þær útheimta sérstaka þekkingu og leikni, eru boðin önnur störf, bæði á sjó og landi, sumpart hjá opinberum stofnunum eða einstaklingum. Þessar vélar eru nú fluttar til landsins og eru notaðar við iðjurekstur, t. d. frystihús, rafmagnsstöðvar o. fl., og má á því sjá, að nokkur hætta er á, að erfitt verði fyrir ríkið að halda þessum mönnum, ef það greiðir ekki eins hátt kaup og einstaklingsrekstur. Ég verð að láta uppi þá skoðun, að ég tel, að ekki yrði hægt að grípa upp í fljótu bragði vel æfða og vel menntaða menn, ef þeir, sem fyrir eru, sjá sér nauðugan þann kost að fara. Ég veit, að hér í þessari hv. d. eru menn, sem bera svo mikið og gott skyn á þetta mál, að þeir vita, að ég fer hér með rétt mál.
Að lokum skal ég geta þess, að þriðji maðurinn í n., hv. þm. N.-Ísf., taldi sig vinsamlegan þessu máli, þó að hann vildi ekki gerast meðflm. frv.
Sá kostnaður, sem af þessu leiddi fyrir ríkissjóð, mun verða samkv. útreikningi í fyrra 22 þús. kr., og býst ég við, að það yrði nokkuð svipað nú, en hann fer eftir því, hvort skipin eru gerð út að staðaldri eða ekki. En þó að ríkissjóður verði að taka á sig þessi auknu útgjöld, sem ég tel ekki stórvægileg á svo stórum rekstri — það er vitað, að það kostar ríkið 800000 kr. yfir árið, ef öll varðskipin eru látin ganga —, þá virðist mér, að þessar 20000 kr., sem varið yrði til að bæta kjör skipsmanna, sé ekki svo ýkjahá prósenta. Ég býst nú hinsvegar við, að það muni koma fram hér á þinginu síðar, að ekki verði hægt að verja svona miklu fé til þess, og verður prósentan þá hærri heldur en ef sú upphæð er lögð til grundvallar. Mín skoðun er sú, að þó þessi upphæð sé nokkuð há, þá sé henni ekki illa varið til að bæta kjör manna, sem búnir eru að vinna trúlega í þjónustu ríkisins um nokkurra ára skeið, og virðist mér þeir eiga fullan rétt á launum sínum, eins og hverjir aðrir þegnar þjóðfélagsins, sem hafa samskonar störf með höndum. Að mínu áliti getur ríkið ekki greitt lægri laun en það, að þau sé sambærileg við það, sem greitt er við samskonar störf hjá öðrum.
Ég býst ekki við, að nauðsynlegt sé að vísa málinu til n., en tel það þó ekki útilokað. Ég mun samt ekki gera till. um það.