27.10.1934
Efri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1866 í B-deild Alþingistíðinda. (2760)
75. mál, varðskip landsins og skipverja á þeim
Magnús Guðmundsson:
Hv. þm. S.-Þ. finnst heldur lítið til um þann sparnað, sem ég hefi komið til leiðar í rekstri varðskipanna. Þessi sparnaður minn er þó um 250 þús. kr. á ári. miðað við kostnaðinn við útgerð varðskipanna síðasta árið, sem hv. þm. fór með þessi mál sem dómsmrh. Spái ég því, að hv. þm. eigi eftir að láta sér annt um minni upphæðir en milljónarfjórðung áður en afgreiðslu fjárl. verður lokið að þessu sinni.
Þá vildi ég skjóta einu orði að hv. frsm. Hann sagðist hafa það eftir lögfræðingum, að breytingar á launafyrirkomulagi starfsmanna varðskipanna mundu hafa í för með sér brottfall starfssamninganna. Þetta nær auðvitað engri átt. Dettur víst engum í hug, að öll embætti á landinn myndu verða laus, þó að launalögunum væri breytt, eins og yrði bein afleiðing af þessu.