27.10.1934
Efri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1866 í B-deild Alþingistíðinda. (2765)
75. mál, varðskip landsins og skipverja á þeim
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Hv. 2. þm. Rang. þótti till. okkar illa orðuð. Skal ég ekki hafa á móti því, að till. verði orðuð betur. Aðeins vil ég færa það fram okkur flm. till. til afsökunar, að þeir, sem óskuðu eftir, að við bærum till. fram, fengu okkur hana í hendur þannig orðaða, enda munu skipunarbréfin vera með þessu orðalagi. — Skal ég lýsa yfir því, að ég felli mig vel við brtt. hv. 2. þm. Rang. og tel sjálfsagt að samþ. hana.