12.12.1934
Efri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2023 í B-deild Alþingistíðinda. (2778)
104. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Ég skal hafa framsöguræðu mína stutta. N. er sammála um frv. í aðalatriðunum og vill samþ. það óbreytt, en einn af nefndarmönnum hefir þó skrifað undir það með fyrirvara, og liggja fyrir brtt. frá honum á þskj. 742, sem meiri hl. n. getur ekki fallizt á.