12.12.1934
Efri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2023 í B-deild Alþingistíðinda. (2779)
104. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
Jón Auðunn Jónsson:
Ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, því að ég er ósamþ. 1. og 2. gr. frv. og kem með brtt. við þessar gr. á þskj. 742.
Þetta frv. er að sumu leyti endurbót á núgildandi l., en það er sá galli á því, að nýjar verksmiðjur má ekki byggja samkv. því nema með leyfi ráðh., né heldur stækka þær verksmiðjur, er nú eru til, án hans leyfis. Það getur verið, að þeir, sem eiga verksmiðjur nú, þurfi að skipta um vélar eða vélasamstæður og stækka verksmiðjuna í sambandi við það, svo að hún geti t. d. unnið úr 800 málum á sólarhring í stað 500 mála. Mér finnst engin meining í því, að þeir þurfi að leita til ráðh. til þess að fá leyfi til þess, sem alltaf er þó undir hælinn lagt, að fáist.
Þá álít ég, að 2. gr. frv. sé óþörf, því að ríkisstj. getur tekið stöðvarnar eignarnámi samkv. gildandi l. um eignarnám.