29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í B-deild Alþingistíðinda. (281)

1. mál, fjárlög 1935

Ólafur Thors:

Ég á hér eina litla brtt. við þennan kafla fjárlfrv., og er hún á þá leið, að hækka framlagið til bryggjugerða og lendingarbóta um 6000 kr., til bryggjugerðar í Kirkjuvogi í Höfnum. Þarna hefir lengi verið rekin útgerð, fyrst með árabátum, en síðar með trillubátum. En erfiðleikarnir við að koma aflanum á land hafa verið svo miklir, að menn hafa orðið að bera hann á bakinu langar leiðir. Þegar trillubátarnir komu til sögunnar, fóru útgerðarmenn að hugsa til þess að koma sér upp bryggju og hafa nú þegar lagt fram til þess af litlum efnum 10—13 þús. kr. Hér þarf þó enn mikilla umbóta við, ef mannvirkið á að geta verið til frambúðar. Ég geri ekki ráð fyrir, að upphæð sú, sem ég fer hér fram á, sé nægileg, en ég hefi viljað stilla þessari fjárbón í hóf, svo að hún fengi fremur áheyrn. Ég veit vel, að víðar stendur líkt á og hér, þótt ég efist um, að þörfin sé meiri annarsstaðar. En ég vil benda á það, að einmitt úr þessu kjördæmi, Gullbringu- og Kjósarsýslu, fær ríkissjóður miklar tekjur, en að hinsvegar hafa mjög verið sparaðar á síðustu árum fjárveitingar úr ríkissjóði til kjördæmisins og íbúa þess. Ég vænti þess því, að þessi till. fái góðan byr.

Ég ætla mér ekki að fara að gera hér almennar aths. við fjárlfrv. eða brtt. þær, sem fram eru komnar. Ég gerði aths. mínar við fjárl. í eldhúsumr., og hv. frsm. minni hl. hefir gert ljósa grein fyrir afstöðu okkar sjálfstæðismanna við þessa umr. Ég get þó ekki látið hjá líða að kvarta yfir því, að færð hefir verið niður sú fjárveiting, sem vegamálastjóri hafði lagt til, að veitt yrði til Kjósarvegar. Hann lagði til, að í þessu skyni yrðu veittar 25 þús. kr., en stj. og fjvn. hafa lækkað þetta niður í l0 þús. kr. En það er alveg fyrirsjáanlegt, að þessar 10 þús. kr. koma þarna ekki að neinu gagni. Fé þetta á að nota til framlengingar á vegarspotta fyrir Reynivallaháls, en með 10 þús. kr. verður að vísu hægt að lengja hann, en án þess þó, að hann nái sambandi við aðalveginn. Ég skal játa, að þessar 10 þús. kr. eru til nokkurra atvinnubóta í héraðinu, en með svo lágri fjárveitingu verður ekkert gagn að vegarlagningunni sjálfri. Þetta er ekkert sérstakt hagsmunamál míns kjördæmis. Vegurinn fyrir Hvalfjörð er orðinn aðalvegurinn norður, og ferðum fjölgar með ári hverju. En vegurinn er ekki enn kominn lengra en það, að enn verður að fara yfir endann á Reynivallahálsi, en sá kafli er af mörgum, bæði bílstjórum og ferðamönnum, talinn einhver allra hættulegasti kafli á bílvegum landsins. Ég veit ekki, hvort hv. frsm. meiri hl. hefir farið þessa leið, en ég segi fyrir mig, að ég hefi hvergi orðið hræddari á ferðalögum mínum en á Reynivallahálsi, þar sem mörg hundruð metra hengiflug tekur við fyrir neðan vegarbrúnina, svo að engu má skeika. Ég vil nú spyrja hv. frsm. meiri hl., hvort hann vilji taka á sig ábyrgð á þeim slysum, sem hljótast kunna af því, að vegurinn fyrir Reynivallaháls sé ófullgerður áfram, vegna synjunar á þessari nauðsynlegu fjárveitingu.

Aðrar brtt. snerta ekki mitt kjördæmi og sé ég því ekki ástæðu til að gera þær að umtalsefni.