30.10.1934
Neðri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1905 í B-deild Alþingistíðinda. (2839)
71. mál, fiskimatsstjóri
Ólafur Thors [óyfirl.]:
Ég veit ekki, hvort hv. þm. N.-Þ. þarf að auglýsa eftir sneiðinni lengur eða hvort hann hefir þótzt fá hana hjá hv. 1. þm. Rang. áðan. Í tilefni af því, sem hv. 1. þm. Rang. sagði, vil ég einungis færa fram afsökun mína fyrir því, að ég gerði honum getsakir hvað viðkom tímalengdinni, sem hann ætlaði fiskifulltrúanum til dvalar hér á landi. Eins og hv. þm. Vestm. sagði, þá hafði ég þær upplýsingar frá hv. þm. V.-Ísf., sem er meðflm. að till. hv. 1. þm. Rang. Hv. 1. þm. Rang. gerir ráð fyrir því, að fulltrúinn þurfi að dvelja hér lengi árs, og um það er ég honum alveg sammála. (JÓl: Till. ber þetta með sér). Alveg rétt. Þar er tekið fram, að hann eigi að vera hér eins lengi og nauðsyn beri til. En ég taldi hinsvegar heimilt að leggja í þetta þann skilning, sem ég gerði, vegna orða hv. meðflm. En hann þarf ekki að vera skilningur hv. 1. þm. Rang. fyrir því. En ef hv. þm. álítur, að þessi maður þurfi að dvelja hér langdvölum, þá fer að færast saman bilið á milli okkar, og þá er hið skynsamlegasta í þessu máli að leggja niður fiskifulltrúaembættið, sem hefir um 30—40 þús. kr. árlegan kostnað í för með sér, og láta matsstjórastarfið koma í staðinn, með þeirri tilhögun, sem frv. felur í sér.
Hv. þm. N.-Þ. svara ég ekki miklu. Mér varð á að segja, að þm. væri ekki vel innrættur og ekki vel skemmtilegur að deila við, þegar hann mér til stórrar undrunar stóð upp til að skýra frá því hér í d., að sig vantaði skýringu á því frá mér, hvernig á því hafi staðið, að till. hv. 1. þm. Rang. fékk ekki undirtektir í hv. sjútvn. Þessi þm. er orðinn svo vanur því að skrifa fyrir aðra menn en þá, sem ég næ til, og mæta mér yfirleitt á þeim vettvangi, þar sem hann getur talað sínu máli án þess að ég jafnóðum geti rekið ofan í hann ósannindin og óhróðurinn, að hann gleymir því, að nú stöndum við á þeim vettvangi, þar sem ég get jafnóðum látið hann kyngja ósannindunum. Ég sagði frá því áðan, að ég teldi það eðlilegar orsakir fyrir því, að till. fékk ekki undirtektir í n., að flokksbræður hans þar eru flm. frv. þess um matsstjóra, sem ég er 1. flm. að, og því ekki von, þótt þeir væru flokksbræður hans, að þeir vildu taka hans till. fram yfir sínar eigin. Það er alveg makalaust, að svo skuli hv. þm. N.-Þ. standa hér upp og segja, að ég eigi þessu alveg ósvarað. Þetta er nú helzt til að stytta málalengingarnar á Alþingi, að þurfa að margtyggja annað eins og þetta í þm. En viðvíkjandi því, sem hv. þm. sagði um viðleitni mína til þess að þrengja niður kaupi þess fólks, sem hjá mér vinnur, þá get ég án þess að blikna eða blána sagt það, að þeir menn, sem hjá mér vinna, bera yfirleitt miklu meira úr býtum en aðrir verkamenn í þjóðfélaginu gera. Ég hygg, að mitt skrifstofufólk sé launað í hæsta flokki, og sjómennirnir betur en hjá öðrum sambærilegum fyrirtækjum. Það er fjarri því, að ég hafi skoðað það mitt hlutskipti að gera hlut þessa fólks sem minnstan; þvert á móti hefi ég reynt að gera þess hlut eins góðan og mögulegt hefir verið og getan hefir frekast leyft. Og það skal standa óhaggað, að sjómennirnir á skipum míns félags skulu hafa meira í sinn hlut en sjómenn á nokkrum öðrum skipum á Íslandi. Nú vil ég spyrja hann, hvort hann getur sagt hið sama um sín viðskipti við náungann. Það er alkunn sagan um hrossakjötstunnuna. Og ef hv. þm. vantar enn sneið, þá kallaði ég hann áðan aula, og nú hefir hann verið minntur á hrossakjötið og kallaður spiladós.