29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í B-deild Alþingistíðinda. (286)
1. mál, fjárlög 1935
Frsm. minni hl. (Magnús Guðmundsson):
Ég get verið stuttorður. Hv. frsm. meiri hl. sagði nákvæmlega það sama og ég hafði áður sagt viðvíkjandi Úthéraðsvegi. En mér fannst hann ekki hafa gilda ástæðu til þess að falla frá því að flytja um hann brtt. Hinsvegar er það ekki nema mannlegt, þó að hv. þm. léti það vera, eftir að hann var búinn að fá framlag til síns eigin vegar — Norðfjarðarvegar. En sem fjvn.maður átti hann líka að hugsa um aðra landshluta en Austfirðingafjórðung.
Hv. frsm. vildi halda því fram, að stefna vegamálastjóra væri sú, að leggja fram fé til malbikunar á þjóðvegum í grennd við Rvík, án þess að hann hugsaði nokkuð um að koma einstökum landshlutum í samband við þjóðvegakerfið. En ég held, að það sé ekki rétt að ásaka vegamálastjóra fyrir þetta. Því ástæðan til þess, að hann leggur til, að þessu fé verði varið til malbikunar á vegum, er sú, að það er lögákveðið, að viss hluti af bifreiðaskattinum sé lagður fram til þess. Það er undarlegt, að hv. frsm. skuli aðeins beina þessum ákúrum til vegamálastjóra, en ekki stj. En þeir aðilar hafa báðir lagt þetta til, af því það er lögákveðið, og hvorki vegamálastjóri eða hæstv. stj. eiga skilið að fá ávítur fyrir það. Verði þessi fjárveiting til malbikunar þjóðvega felld úr frv., þá er það brot á öðrum lögum, og verður því að breyta því atriði þeirra laga, sem fjalla um ráðstöfun á bifreiðaskattinum, a. m. k. til bráðabirgða. Annars veit ég ekkert, hvernig vegamálastjóri lítur á þetta, að felldur sé niður liðurinn til malbikunar; ég hefi ekki nefnt það við hann.
Ég held, að það sé ekki fært að gera ráð fyrir því, að það fækki bílaferðum í kringum Hvalfjörð, þó að nýtt skip verði keypt til Borgarnessferða. Ég geri þvert á móti ráð fyrir því, að bílaferðir haldi áfram að aukast á þessari leið. Og þess vegna er mjög nauðsynlegt að hækka fjárveitinguna til Kjósarvegar, svo að honum verði komið fyrir Reynivallaháls. Mér skildist á vegamálastjóra á fjvn.-fundi, að 15 þús. kr. í viðbót mundu nægja til þess, að hægt væri að koma veginum yfir versta kaflann, og mætti þá með dálitlum afleggjara á þjóðveginn komast fyrir framan hálsinn. Vildi ég gjarnan, að þetta yrði athugað nánar.
Ég ætla mér ekki að karpa mikið við hæstv. fjmrh. Hann sagði, að ég hefði tekið það allt aftur, sem ég sagði í minni fyrri ræðu um að hann hefði sýnt hlutdrægni í till. sínum í fjárlfrv. og skarað eld að köku síns kjördæmis. Þetta er algerlega rangt. Hann bar það á okkur í minni hl. fjvn., að við hefðum lagt til að strika út allar fjárveitingar til Suður-Múlas. Ég benti honum á, að það væri rangt; við hefðum ekki flutt brtt. um að fella niður úr frv. einn eyri af fjárveit. til vega í því kjördæmi. Svona er hann sannorður. Auðvitað bar ég fram ásökun um hlutdrægni út af hækkunartill. hv. meiri hl. fjvn., sem m. a. hefir hækkað framlag til Norðfjarðarvegar úr 5000 upp í 20 þús. kr. En ég var ekki að hallmæla hæstv. fjmrh. fyrir þá hækkun eða eigna honum till. hv. meiri hl. fjvn.; þó má vel vera, að hann hafi átt einhvern þátt í þeim, mér er ókunnugt um það. Eftir brtt. hv. meiri hl. fjvn. fær Suður-Múlasýsla langhæst fjárframlög til vega af öllum héruðum á landinu. Er það óneitanlega nokkuð hátt stökk frá því, sem áður hefir tíðkazt. En þrjár sýslur fá engan einasta eyri til vega: Vestur- og Norður-Ísafjarðarsýslur og Austur-Húnavatnssýsla. Þetta ber vott um alveg óhæfilega ósanngirni, og verð ég að taka undir með hv. þm. V.-Ísf., að það er harkalegt að svipta heil héruð gersamlega framlögum til vega, einkum þegar tekið er tillit til þess, að því er haldið fram af stj. og meiri hl. fjvn., að vegaféð eigi að vera til atvinnubóta í sveitunum.
Ég spái því, að það eigi eftir að koma fram brtt. frá hv. meiri hl. fjvn., til aukinna vega í þeim héruðum, sem nú hafa verið sett hjá, þrátt fyrir allar flokkasamþykktir, sem hv. stjórnarflokkar hafa nú orðið að lúta, áður en þeir gengust undir það, að enginn þm. úr þeirra hóp skyldi flytja brtt. við fjárl.frv. Ég spái því, að fjárl. eigi eftir að taka allmiklum breytingum, áður en þau koma út úr þinginu. Við sjáum nú til, hvernig fer.