04.12.1934
Efri deild: 52. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2258 í B-deild Alþingistíðinda. (2883)
106. mál, vélgæsla á mótorskipum
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Ég mun ekki svara nema fáu af því, sem hér hefir verið sagt. Hv. þm. taldi ólíklegt, að vélstjórar myndu leggja sig eftir meira námi til þess að geta stjórnað mótorvélum. Þetta er rangt hjá honum. Við eigum að vísu ekki mörg skip með stórum dieselvélum, en við eigum þó eitt, sem er varðskipið Ægir, og sá maður, sem er nú yfirvélstjóri, hefir haft vélina frá byrjun. En 1. yfirvélstjórinn á því skipi var 6 mánuði í Danmörku til þess að kynna sér meðferð slíkra véla, og var það þó þaulreyndur gufuvélavélstjóri með ágætu prófi. Ef stórum dieselvélum fjölgar í skipum hér, þá verða menn að hafa aukanám til að geta stjórnað þeim. Og ég er ekki í vafa um, að vélstjórar munu hér eftir leggja sig eftir slíkri fræðslu meira en verið hefir.
Þegar mótoristal. voru sett, var gert ráð fyrir skóla hér í Rvík, sem veitti kennslu í þeim fræðum, en hann er ekki kominn enn. Slíkur skóli þarf auðvitað að koma sem fyrst.
Ég vil ekki fara að bera saman laun þessara manna og embættismanna ríkisins. En í sambandi við þau orð, sem féllu hjá einum hv. þm. um loftskeytin og öryggið, vil ég geta þess, að oft, þegar menn hafa staðið í dauðans greipum í brimgarðinum, hafa þeir bjargast fyrir tilstilli loftskeytanna.