10.12.1934
Efri deild: 57. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2025 í B-deild Alþingistíðinda. (2899)

170. mál, Byggingarfélag Reykjavíkur

Pétur Magnússon [óyfirl.]:

Það má náttúrlega segja það um þessi hús Byggingarfél., að þau hafi orðið til þess að bæta úr húsnæðisþörf bæjarins, en það má segja það sama um öll hús, sem hér hafa verið reist. Allar húsabyggingar miða að því að bæta úr húsnæðisvandræðum. En ég vil benda hv. þm. á, að 1. gr. l. um verkamannabústaði segir, að stofna skuli byggingarsjóð til þess að bæta úr húsnæðisþörf verkamanna í kaupstöðum og kauptúnum landsins. Það verður ekki lagður annar skilningur í þetta en að nota eigi sjóðinn til þess að koma upp nýjum byggingum til þess að bæta úr húsnæðisþörf verkamanna. En það er viðurkennt, enda augljóst, að það fé, sem lánað yrði þessu byggingarfélagi, miðar ekki að því að bæta úr húsnæðisþörfinni, þar sem ekki yrði komið upp nýjum húsum fyrir þetta fé.