30.11.1934
Sameinað þing: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (290)

1. mál, fjárlög 1935

Jón Auðunn Jónsson:

Ég á aðeins eina till. við þennan kafla, og er hún um það að hækka styrk til kvenfélagsins Óskar á Ísafirði. Ég vænti þess, að hv. n. hafi fengið umsókn félagsins, en það hefir sem kunnugt er haldið uppi skóla í fjölda ára með litlum styrk. Hinsvegar hafa konurnar sjálfar lagt mikið til hans. Hliðstæðir skólar annarsstaðar hafa notið mun meiri styrks. Ég býst við, að skólaskýrslan liggi fyrir hjá hv. n. Skólinn hefir verið fyrirmynd, lokið lofsorði á kennsluna, og þar hafa verið stúlkur úr öllum sýslum landsins nema einni, og venjulega fleiri utan af landi en frá Ísafirði. Var svo á síðasta skólaári. Í stuttu máli sagt, skólinn er viðurkenndur sem einn hinn bezti í sinni grein. Ég vænti þess, að hv. þm. hafi kynnt sér það, sem fram er fært, og geti því greitt atkv. með varatill. minni að minnsta kosti.