15.12.1934
Neðri deild: 61. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2268 í B-deild Alþingistíðinda. (2905)
106. mál, vélgæsla á mótorskipum
Sigurður Kristjánsson [óyfirl.]:
Það má vel vera, að stólarnir hér í d. séu eins færir um og líklegir til að taka sönsum við það, sem hér er sagt, eins og sumir þeirra, sem á þeim eiga að sitja. En leiðinlegra er að þurfa að tala um mál, sem einhvers virði er, í tómu húsi. Sérstaklega er það leitt, að menn, sem búnir eru að tala í málunum og kasta fram rökleysum, sumpart fjarstæðum og sumpart aðkasti til manna, sem þurfa að svara, skuli svo beita bakinu við öllum svörum og hafa sig á burt. En við því er ekki hægt að gera.
Ég held það hafi verið hv. þm. Borgf., sem taldi það ekki ná nokkurri átt, að það væri skerðing á örygginu á sjónum, þó réttindi mótorista séu færð upp eins og hér er farið fram á. Ég held nú, þó ég sé enginn kunnáttumaður á þessu sviði, að öryggi vélskipa sé nokkuð mikið komið undir því, að tryggt sé eins og auðið er, að vélin sé í góðu lagi. Það er a. m. k. ómögulegt að segja, að það sé örygginu á sjónum óviðkomandi. Hitt er hér um að ræða, hvort þeir menn, sem talað er um að veita aukin réttindi, séu eins færir eins og þeir, sem réttindin hafa áður.
Þá hefir því verið haldið fram af hv. 3. landsk. og hv. þm. Borgf., að skipaskoðunarmaðurinn viti ekkert, hvað hér er um að ræða; hann hafi aðeins vitað um frv. eins og það var upphaflega lagt fyrir þessa d. Ég veit ekki, á hverju þeir byggja þetta. (PÞ: Það er augljóst af bréfi hans). Það er augljóst, að þetta er blekkingartilraun hjá hv. þm. Ef nokkuð er hægt að ráða af bréfi skipaskoðunarmannsins, þá er það það, að hann veit um þetta allt saman. En það getur verið, að þessi hv. þm. viti ekkert hvenær bréfið er dagsett og hvenær umr. fóru fram í Ed. Bréfið er skrifað eftir að frv. var afgr. frá Ed. Hv. þm. Borgf. talaði einnig um, að stjórnendur vátryggingarfélagsins hefðu lítið um þetta að segja. Það kann nú að vera, að þeir séu engir sérfræðingar í meðferð véla, en líklegt er, að þeir, sem gegna því trúnaðarstarfi að taka á móti vátryggingum skipa, kynni sér eitthvað þessi mál, a. m. k. er ekki hægt að segja, að þau séu þeim óviðkomandi, því auðvitað er öryggi skipa ekki að litlu leyti undir því komið, hvernig með vélarnar er farið.
Þá hefir því verið haldið fram, að ákvæði þau um próf, sem nú eru komin inn í frv., muni tryggja það, að þeir, sem aukin réttindi fá, séu fullfærir til þess að taka á móti þeim. Ég vil taka undir það með hv. 3. þm. Reykv., að í þessu ákvæði felst engin trygging fyrir því, að viðkomandi menn hafi stundað smíðanám. Prófið er, eins og hv. þm. Borgf. komst að orði, til þess að sýna, hvað þessir menn hafa lært af reynslunni. Þeir hafa e. t. v. verið langan tíma við vélgæzlu og ganga svo undir próf, bóklegt og verklegt, til þess að sýna, að þeir kunni að fara með vélar. En það eru engin ákvæði um það, að þeir skuli hafa stundað vélanám og þannig lært til vélsmíða. Og skipaskoðunarmaðurinn leggur einmitt mikla áherzlu á það, að menn þurfi a. m. k. að hafa lært til járnsmíða. Það er vitanlegt, að þó menn kunni að fara með vélar, gæta þeirra og hirða þær, þá getur átt sér stað, að þeir kunni ekki að halda á hamri eins og kallað er.
Það þykir nú e. t. v. ekki stórt atriði, en auðvitað eykur það útgerðinni geysilega kostnað, ef þeir, sem með vélarnar fara, geta lítið gert við það, sem bílar. Það er nú e. t. v. bara kostur í augum þeirra manna, sem helzt vilja koma allri útgerð á hausinn til þess ríkið geti tekið við. En frá almennu sjónarmiði er það mikils virði, að menn geti gert við það, sem bilar, um borð. Ég hefi ekki mikla reynslu í þessum efnum, en ég veit þó, að á einu skipi sem ég var kunnugur, var í nokkur ár maður, sem verið hafði við vélsmíðar rúm 10 ár, og ég veit, að það munaði þá útgerð fleiri þús. kr. á ári, hvað viðhald vélarinnar var ódýrara einmitt af því þessi maður var vélstjóri. Voru þó bæði fyrr og síðar mjög góðir vélstjórar á þessu skipi.
Því hefir verið hvað eftir annað fleygt hér í d. að beitt hafi verið „agitation“, að því er mér skilst við okkur, sem viljum fara þann milliveg að hækka réttindin upp í 300 hestöfl. Mér finnst þetta mjög illa til getið. Ég veit það um mig, að ég hafði mikla tilhneigingu til að láta eftir þeim mönnum, sem fá vilja réttindin meira aukin, m. a. vegna þess, að á meðal þeirra manna, sem þess nytu, á ég kunningja, sem ég vildi gjarnan gera greiða. Það er hart, að þeir menn, sem ég veit að hafa einkahagsmuni fyrir augum í þessu máli skuli bera þá menn brigzlyrðum, sem eru það gætnari, að vilja ekki láta persónulegan kunningskap ráða afstöðu sinni. Ég veit ekki til, að þeir, sem lengst vilja ganga í þessu máli, hafi neina aðra ástæðu til þess en þá, að það kunni að vera haganlegt fyrir einn eða tvo menn, að réttindin séu aukin á þann hátt, sem þeir leggja til. En það getur hver skyniborinn maður séð, hvert það leiðir, ef sífellt á að auka slík réttindi sem þessi, e. t. v. úr hófi fram, eftir því hvort einn og einn maður hefir hagsmuni af því. Það er auðvitað illt að gera nokkrum manni óþægindi, en það dugir ekki að ganga svo langt í þeirri góðsemi, að það raski öllum heilbrigðum reglum.
Það er mismunandi, hvað menn leggja mikið upp úr sérþekkingu. Ég veit, að það er talsvert ríkjandi hér fyrirlitning fyrir sérþekkingu, og það hefir orðið vart við nokkurt aðkast til þeirra manna, sem lagt hafa á sig að afla sér sérþekkingar. Þetta er mjög skaðleg villa. Það, sem okkur einmitt vantar tilfinnanlega, er sérþekking og virðing fyrir sérþekkingu. Á ég þar ekki við vélfræðinga fremur en aðra. Hér er svo margt, sem fer í súginn fyrir vöntun á sérþekkingu, að okkar fátæka þjóð má ekki við því.
Nú er ekki hægt með sanngirni annað að segja en að við, sem fallizt höfum á að hækka takmarkið, sem hér er um að ræða úr 150 hestöflum upp í 300, höfum reynt að fara bil beggja. Skipaskoðunarmaðurinn, sem er eini sérfræðingurinn á þessu sviði og engin ástæða er til að væna um hlutdrægni, hefir einmitt tiltekið þetta mark sem hámark. Telur hann sanngjarnt, að réttindin séu eitthvað aukin vegna þess að nú er farið að nota vélar með miklu fleiri hestöflum, miðað við smálestatölu skipanna, heldur en áður var.
Það er ekki rétt að láta skína í það hér, að þeir menn, sem lært hafa vélstjórafræði, öðlist litla þekkingu í meðferð mótorvéla. Í vélstjóraskólanum er einmitt kennt að fara með mótorvélar. Í bréfi skólastjóra vélstjóraskólans er tekið fram, að þar sé regluleg kennsla í mótorvélafræði 4 tíma í viku, og það er ekki svo lítil kennsla.
Ég held ég hafi svo engu við þetta að bæta öðru en því, að það var gripið fram í fyrir mér áðan og því mótmælt, að ekki væru nema tvö skip með stærri mótorvél en 300 ha. Ægir er auðvitað þar að auki, en annars er hér aðeins um tvö skip að ræða, Eldborgina og Skeljung. Það er því ekki hægt að segja, að setja þurfi takmarkið hærra vegna vöntunar á vélstjórum, þar sem ekki er um fleiri skip að ræða.