30.11.1934
Sameinað þing: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (291)
1. mál, fjárlög 1935
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Ég á eina litla brtt. við þennan kafla, um styrk til Friðriks Ottóssonar. Hann er búinn að vera vegavinnuverkstjóri í 25 ár, en hefir nú legið sjúkur í ár og engum störfum getað sinnt. Þessi maður er kominn af bezta skeiði, og litlar líkur eru til þess, að hann geti komizt áfram hjálparlaust, þótt hann kannske að einhverju leyti fái heilsu sína aftur, eins og ég hefi nýlega heyrt að von sé um. Slíkir menn hafa oft fengið nokkra upphæð árlega sem eftirlaun. Ég fer ekki fram á, að honum verði veitt neitt fast árlega, heldur að honum verði veittar nú 500 kr. í eitt skipti fyrir öll. Ég vænti þess, að hv. Alþingi líti með velvilja á þetta.
Ég er meðflm. að nokkrum brtt., en hv. 10. landsk. mun gera grein fyrir þeim.
Hv. frsm. síðari kaflans vék að mér í sambandi við styrkveitingu til Búnaðarfélagsins. Ég vil sérstaklega víkja að nokkru af því, sem þar kom fram. Hann hélt því fram, sem rétt er, að Búnaðarfélagið hefði umboðsvald fyrir ríkið. Búnaðarfélagið annast um ýms verkefni fyrir ríkið, og það er ekki svo lítið fé, sem árlega gengur til bænda gegnum félagið. Þetta er og viðurkennt af félaginu, því að það er venja, að áætlun um tekjur og gjöld félagsins sé send atvmrh. til umsagnar.
Hv. frsm. var að tala um, að félagið hefði verið sundurþykkt. Það er rétt, að það reis upp deila innan félagsins fyrir nokkrum árum, en sú deila hefir verið jöfnuð nú og heyrir því sögunni til. Þessi deila olli á sínum tíma óþægindum hvað snerti verkaskiptinguna milli búnaðarmálastjóra og starfsmanna þeirra. Þessu er nú ekki lengur til að dreifa og samstarfið er ákjósanlegt. Það er nú aðeins einn ljóður á ráði félagsins, sem telja má þó víst, að bætt verði úr áður en langt um líður, en það er það, að stjórn félagsins er ekki skipuð eftir vilja búnaðarþings, og því ekki ætíð í samræmi við vilja þingsins. Þessu þarf að breyta, því að því aðeins, að stjórnin sé í samræmi við þá, sem eiga að ráða um starf félagsins, er hægt að búast við happadrjúgu starfi. Eins og ég hefi tekið fram áður, er búnaðarþingið myndað á sama hátt og aðalfundur S. Í. S. Það er byggt neðan frá og upp úr að öllu leyti. Þetta komst á 1931 og kostaði átök þá, en síðan hafa allir gert sig ánægða með þetta. Það eina, sem eftir er, er að fá viðurkenningu hv. Alþingis fyrir því, að Búnaðarfélagið eigi sjálft að kjósa sína eigin stjórn. Nú liggur fyrir þinginu frv. um það, að fella úr jarðræktarlögunum þau ákvæði, er mæla svo fyrir, að 2/3 af stj. félagsins skuli kosnir af Alþingi. Mér hefir virzt, að þetta sé alltaf að vinna meira og meira fylgi meðal flokkanna, og tel því gefið, að frv. verði samþ., enda þótt ég sé hissa á þeim drætti, sem orðið hefir í Ed. á afgreiðslu málsins.
Hv. frsm. krafðist þess, að þetta ósamræmi í stjórninni og ósamræmið á milli stj. og búnaðarþingsins yrði afnumið. Ég skyldi sízt mæla á móti því, að það yrði gert. En þá verður Alþingi að gera þá breytingu, að stjórn Búnaðarfélagsins sé í samræmi við búnaðarþingið. M. ö. o., að leyfa búnaðarþinginu að velja stjórnina.
Hv. frsm. sagði í gær, að íhlutun Alþingis um stjórn Búnaðarfélags Íslands hefði verið undirrótin að ósamkomulagi því, sem ríkt hefir innan félagsins, og það er ekki ósennilegt, að svo hafi verið í raun og veru, en eigi að laga þetta, þá verður að kippa burt þessu ákvæði laganna. Annars er engin ástæða til þess að efast um, að stj. Búnaðarfélagsins hefði hiklaust orðið við kröfum búnaðarþings. ef hún hefði verið kosin af því. Ég býst nú við, að við getum orðið nokkurn veginn sammála um afgreiðslu á þessum lið fjárlfrv., og til þess að gera það greinilegt, hvað fyrir þinginu vakir um afgreiðslu þessa máls, hefi ég borið fram brtt. á þskj. 628. sem hljóðar svo: „Ríksstj. getur gert það að skilyrði fyrir greiðslu á styrk til félagsins, að fjárhagsáætlun þess sé samþ. af landbúnaðarráðh. og að ráðning búnaðarmálastjóra sé samþ. af búnaðarþingi, enda sé hann ekki nema einn“. — Í þessu felst viðurkenning á þeim framkvæmdum, sem verið hafa að undanförnu. Fjárhagsáætlun félagsins á að leggjast fyrir landbúnaðarráðh., og með því ætti að vera fengin full trygging fyrir samræmi á milli búnaðarþings og stj. Búnaðarfélags Íslands. Þá ættu að vera útilokaðar allar togstreitur, sem verið hafa þar á milli, og hinsvegar er ríkisvaldinu fengið í hendur fullt eftirlit með fjárreiðum Búnaðarfélagsins, sem varða ríkið að sjálfsögðu miklu, þó að miklum hluta þess fjár, sem til félagsins gengur, sé ráðstafað eftir föstum lagafyrirmælum þar að lútandi.
Ég skal ekki fara að fjölyrða um það verkefni, sem Búnaðarfélagið hefir leyst af hendi undanfarin ár. Um það var töluvert rætt við eldhúsdagsumr. En ég get bætt því við, að langafkastamest hefir félagið verið frá 1931, er þessi fasta skipun komst á. Má í því sambandi t. d. benda á hestasöluna til Þýzkalands síðastl. sumar, sem félagið átti frumkvæði að og allir hlutaðeigendur mega vera því þakklátir fyrir. Það mun hafa verið sett að skilyrði fyrir kaupunum af hálfu þýzkra stjórnarvalda, að hestarnir væru keyptir í gegnum Búnaðarfélagið hér. Þetta sýnir, hve sterka aðstöðu það hefir til hagsmuna bændastéttinni. Þá vil ég benda á, að félaginu er falin framkvæmd ýmissa atriða jarðræktarlaganna, sem ekki er hægt að taka af því nema með sérstökum lögum. Ég verð að segja það, að ég teldi illa farið, ef nú ætti að fara að spilla þeirri skipulagningu, sem félagið hefir verið byggt upp með nú að undanförnu. Ég hefi jafnan fylgt því, að Búnaðarfélagið væri byggt upp eins og samvinnufélagsskapurinn, og þegar þetta hefir tekizt fyrir harðfylgi góðra manna, sem að félaginu hafa starfað, þá finnst mér ærið hart að ætla að splundra því nú. Mér fyndist það standa ríkisvaldinu nær að gefa því tækifæri til þess að þroskast og eflast undir því skipulagi, sem það hefir nú verið byggt upp á.
Þá vil ég nota tækifærið til þess að óska eftir því við þá hv. þm., sem hér eru nú og sæti eiga í Ed., að þeir flýti fyrir frv. því, sem þar er komið fram um skipulagningu Búnaðarfélagsins. Nái brtt. mín samþykki, þá tel ég afgreiðslu málsins sæmilega trygga, og með þessu er fjárhagsleg íhlutun ríkisvaldsins líka fyllilega tryggð. Ég skal svo ekki fjölyrða frekar að þessu sinni, en gefist tilefni til, þá mun ég fara nánar inn á starfsemi félagsins til þess að slá niður allar missagnir um óreiðu þar. Það má vera, að ekki hafi allt verið þar jafnan sem skyldi, en það á ekki að láta gamlar syndir standa fyrir eðlilegum þrifum félagsins á lýðræðisgrundvelli.