15.12.1934
Neðri deild: 61. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2272 í B-deild Alþingistíðinda. (2915)

106. mál, vélgæsla á mótorskipum

Sigurður Kristjánsson [óyfirl.]:

Ég vil gera aths. við það, sem hv. 3. landsk. var að lesa hér upp, að hér er ekki um það að ræða, hvað í l. hefir verið heimtað, heldur hvað nú er kennt. Þó úrelt 1. heimti eitthvað annað, er það engin sönnun. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa hér upp kafla úr bréfi frá skólastjóra vélstjóra- skólans. Hann segir svo:

„Kennsla í mótorfræði við vélstjóraskólann er fyllilega eins víðtæk og kennsla í annari vélfræði yfirleitt við skólann, eða minnst 4 tímar á viku bæði skólaárin. Eru þeir, sem prófi hafa lokið við skólann, því síst verr undirbúnir í þeirri námsgrein en öðrum, sem þar eru kenndar, enda munu þeir flestir eins færir um að taka að sér vélstjórn við mótorvélar eins og gufuvélar eða aðrar vélar yfirleitt, og er nú þegar full reynsla fengin fyrir því, að svo er á þeim mótorskipum, sem héðan ganga með meira en 200 hestöfl.“

Þetta segir skólastjóri, og tekur það af öll tvímæli um það, að nemendurnir fái eins mikla fræðslu í meðferð mótora og gufuvéla, þótt úrelt l. mæli annað.

Viðvíkjandi hv. þm. Borgf. vil ég segja það, að það er ekki skemmtilegt að hafa þann mann ekki við, sem maður ætlar að svara, og það því fremur, sem maður kemur veikur upp úr rúminu til þess.

Út af því, sem hv. þm. sagði, að mest bæri að leggja upp úr æfingunni, vil ég segja það, að það er bæði bóklega þekkingin og æfingin, sem verður að vera til staðar. Það er fjarstæða að halda því fram, að æfingin geti komið í staðinn fyrir allt annað nám. Hvaða vit væri í því að kosta upp á margra ára nám, ef það veitti engin réttindi? Nei, þessi regla er röng og háskaleg og kemur í veg fyrir það, að menn leggi rækt við að afla sér sérstaks lærdóms. Ég ræð því frá því, að hv. Alþingi fari að ganga inn á þessa braut.