17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2276 í B-deild Alþingistíðinda. (2937)

106. mál, vélgæsla á mótorskipum

Gunnar Thoroddsen:

Hæstv. forseti krefst þess, að ég geri grein fyrir því, hvers vegna ég óska að sitja hjá við þessa atkvgr. Þó að ég skilji ekki, hvers vegna það er heimtað í þessu máli fremur en öðrum, mun ég að sjálfsögðu verða við kröfu hans, og lýsi ég því þá hér með yfir, að það er m. a. vegna þess, að ég tel mig ekki hafa þá þekkingu á þessu máli, sem ég teldi æskilega, og vona ég, að hæstv. forseti taki þá afsökun til greina.