17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2277 í B-deild Alþingistíðinda. (2943)
106. mál, vélgæsla á mótorskipum
Forseti (JörB):
Hv. þm. G.-K. hefir það vitanlega á valdi sínu að gera grein fyrir atkv. sinn á hvern þann veg, sem honum þóknast. Ég læt þetta nægja af hans hálfu, enda mundi honum vandi á höndum, ef hann ætti að bæta um. Ég spurði þennan hv. þm. ekki ráða, þegar ég krafðist þessarar greinargerðar, og nú segir hann, að þetta hafi aldrei viðgengizt. Ég hefi nú samt gert það áður, en ég játa, að ég geri það sem sjaldnast. Ég lít svo á, að þetta sé ekki hégómamál enda hefir það verið sótt og varið af kappi. Ég mun gera grein fyrir mínu atkv., þegar þar að kemur, í fyrsta sinn.