10.11.1934
Neðri deild: 33. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2039 í B-deild Alþingistíðinda. (2948)
109. mál, dragnótaveiðar í landhelgi
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Ég skal ekki fara langt út í þetta mál. Það virðist vera farinn að réna áhuginn hjá þeim mönnum, sem ekki láta sjá sig til að mæla fyrir sínum brtt., enda er við því að búast, því ef samþ. yrðu, væri það til þess eins að ryðja Dönum og Færeyingum braut inn í Faxaflóa. Mér þykir því ekkert undarlegt, þó flm. till. kveinki sér við að mæla henni bót, en ég skal ekki fara langt út í það nú. Ég hefi áður minnzt á þann mismunandi rétt, sem héruðunum er gefinn með frv. þessu, og tel það algerlega óhæfilegt. Ég legg því til, að málið verði afgr. með svo hljóðandi rökstuddri dagskrá, er ég með leyfi hæstv. forseta vil lesa hér upp:
„Með því að ekki þykir sæmandi að gera misjafnan sjálfsákvörðunarrétt landsmanna um fiskveiðar, eins og gert er í þessu frv., tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“