17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2279 í B-deild Alþingistíðinda. (2965)
106. mál, vélgæsla á mótorskipum
Sigurður Kristjánsson:
Af því að hér er farið að gera grein fyrir atkv., finnst mér rétt að skýra frá því, hvers vegna ég greiði atkv. ólíkt því, sem ég er vanur. En í þessu máli hefir farið fram mjög óvenjuleg „agitation“, og gersamlega þekkingarlaus maður á þessu sviði hefir vaðið hér á menn undir umr. og sumpart flæmt menn út úr deildinni, en sumpart pínt þá til að greiða atkv. Ég lýsi því yfir, að mér virðist málið komið í það efni, að ekki sé eigandi ábyrgð á því að neinu leyti, og mun ég því ekki greiða atkv.