17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2279 í B-deild Alþingistíðinda. (2974)

106. mál, vélgæsla á mótorskipum

Hannes Jónsson:

Þeir hv. þm., sem greiða atkv. á móti þessu frv., munu allir eiga sammerkt við hv. þm. V.-Sk. um það, að þeir vita ekki, hvað er verið að gera í þessu máli. Ég hefi reynt að brjóta málið til mergjar, og skal ég játa, að mörg góð rök hafa verið færð bæði með því og móti. Ég er ekki viss um, hvaða afstöðu ég hefði tekið, en ræða hæstv. forseta hefir styrkt mig í þeirri trú, að rétt sé að vera með málinu, og segi ég því já.