30.11.1934
Sameinað þing: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

1. mál, fjárlög 1935

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Hv. þm. Mýr. hefir gefið nokkra skýringu um Bf. Ísl. og rætt um till. þær, sem fram hafa komið, bæði í fjárl. og brtt. Það er í alla staði eðlilegt, að hv. þm. Mýr. sjái ástæðu til að gefa nokkra skýrslu um Bf. Ísl., starf þess og skipulag. En þessi skýrsla var byggð á því, að ég hefði látið þau ummæli falla í umr. um daginn, að Bfél. væri óstarfhæft. Þetta er ekki allskostar rétt, en ég sagði það, að síðan deilurnar stóðu um Sig. Sig. hefði fél. hnignað. Það má að vísu deila um orðið „óstarfhæft“ og hvenær það á við.

Fyrir það fé, sem B. Ísl. fær á ári hverju, má afkasta miklu, fjárframl. ríkisins er það mikið, að ekki er undarlegt, þó gefa megi skýrslu um, að einhverju hafi verið komið í verk. En ef félagið hefir ekki starfað á þeim grundvelli og með þeim starfsaðferðum, að fjármagnið nýttist sem bezt, þá get ég ekki talið það starfhæft. Ef það hefði getað betur með sama fé og betri starfsháttum, er það ekki starfhæft. Alveg eins og sá maður getur ekki talizt starfhæfur, ef afköst hans jafnast ekki á við venjulegan verkmann. En nóg um það. Ég hefi haldið því fram, að síðan deilan um Sig. Sig. stóð í fél. hafi það aldrei borið sitt barr og ekki verið starfhæft að fullu, og ég álít, að sú staðhæfing standi enn. Dómur þjóðarinnar hefir fallið á þann veg, og það þýðir ekkert að gefa skýrslu um það gagnstæða. Í þessu sambandi minntist hv. þm. á, að ef Sig. Sig hefði verið látinn fara frá, þá hefði það kostað burtför margra annara manna frá félaginu og megna óánægju úti um land, og ef hann var kyrr, þá kostaði það missætti innan félagsins, eða samskonar óánægju annara manna. Það var því farin sú leiðin, að fara bil beggja og gera verka- eða starfsskiptingu í búnaðarmálastjórastöðunni, eða m. ö. o. að gera Sig. Sig óstarfhæfan að mestu leyti, svo hann hefir ekki notið sín síðan. Ég held, að það sé þetta tiltæki í Bfél., sem menn eru óánægðir með og hafa alltaf verið. Þetta tiltæki hefir lamað stórkostlega starfskrafta félagsins, svo það hefir aldrei borið sitt barr síðan. Ég held, að það sé þetta, að geta aldrei skorið úr, hvort Sig. Sig. á að vera eða ekki, hvort hann hafi gert rétt eða rangt, sem fyrst og fremst hafi lamað félagið. Ég álít, að það sé vöntun á þrótti innan félagsins, að geta ekki gert upp, hver átti að vera og hver átti að fara. Hitt skipti félaginu í tvær deildir, sem og hv. þm. Mýr. viðurkenndi, að hefði verið fyrstu árin, en hefði lagazt síðar. Hann viðurkenndi, að fél. hefði skipzt í tvennt, með því að segja, að það hefði lagazt síðan eða á síðustu árum. Ég get ekki farið sérstaklega út í þetta hér á Alþ. Það er hægt að halda því fram, að Bf. hafi margt vel gert og einstakir menn hjá því, en það er erfitt að tala um það án þess að nefna nöfn, og það mun ég ekki gera, nema að því leyti, sem ræða hv. þm. Mýr. gaf tilefni til. Ég sagði í umr. um daginn, að einn starfsmaður Bfél. hefði ekki komið í skrifstofuna í langan tíma. Þetta hefir nú verið staðfest í umr., að væri rétt. (HannJ: Þetta er ekki rétt). Þetta er staðfest í umr. og hafa verið færð rök að, því hann hefir haft skrifstofuna heima vegna þess, að talið er, að ekki sé pláss fyrir hann í búnaðarfélagshúsinu.

Ég vil þá benda á það, að ég veit ekki betur en að það hafi verið gott pláss í Búnaðarfélaginu. T. d. hefir ein starfsdeildin, sem heldur til þar niðri, stóran sal. Ég hygg þess vegna, að sú röksemd sé ekki með öllum rétti, að þessi maður hafi ekki komið í Búnaðarfél. af því að þar hafi vantað húsrúm, en það var þó látið fylgja hjá þessum hv. þm., að þessi ráðunautur hefði komið til fundarhalda, sem er þó góðra gjalda vert.

Þá minntist hv. þm. á, að Búnaðarfél. hefði gert sérstaklega mikið fyrir loðdýraræktina. Ég gat um það í upphafi þessa máls, að ég mundi ekki fara út í einstaka starfsliði, en ég vil þó leyfa mér að segja það í sambandi við loðdýraræktina, að Búnaðarfélagið hafi þar ekki verið á verði svo sem vera bar. Svo mikla þekkingu hefi ég á þessu nú, af þeirri reynslu, sem ég hefi fengið.

Það verður ekki um það deilt, að það er ekki heppilegt að skipa sem ráðunaut í Búnaðarfél. einn af helztu framleiðendum þessarar vöru. A. m. k. hafa komið kvartanir um það, að maðurinn, sem eigi að flokka dýrin, sé einn af þeim, sem hafi allra stærsta „interessu“ af því, hvernig þau eru flokkuð, svo að ekki sé minnzt á þessa aðgæzlu við þessa loðdýrarækt, sem hefir mikla þýðingu fyrir íslenzkan landbúnað. Þar hefir Búnaðarfél. ekki verið á verði, svo að þau dýr, sem nú flytjast inn, eru ekki nægilega góð fyrir 1. flokk, svo að nú eru sífelldar kvartanir frá mönnum, sem vilja stunda þessa atvinnugrein, að fá að flytja inn 1. flokks dýr, af því að það sé svo erfitt að fá þau hér á landi.

Með þessu hefi ég þá sýnt fram á það, að þetta atriði, sem ég sérstaklega minntist á undir umr., það hefir verið viðurkennt. Og þá er ekki annað eftir fyrir mig en að færa rök að því, að fyrirkomulagið í Búnaðarfél. sé ekki eins og það eigi að vera. Ég mun síðar í þessari ræðu reyna að gera nokkra grein fyrir því og mun þar leiða fram vitni, sem ég vænti, að sumir hv. þm. taki nokkurt mark á. En áður en ég sný mér að því, vil ég aðeins minnast á það, að á undanförnum árum hefir staðið deila um það, hvernig ættu að vera yfirráðin yfir Búnaðarfél. Ísl., hvort Alþingi ætti samkv. því valdi, sem það hefir samkv. jarðræktarl., að kjósa 2 menn í stjórn félagsins, eða félagið ætti að hafa fullkomna sjálfsstjórn.

Í raun og veru get ég, þegar ræða skal um það, hvort fyrirkomulagið á Búnaðarfél. sé gott eða lélegt, verið fáorður, því að í síðari hluta ræðu sinnar tók hv. þm. Mýr. það fram, að nú væri svo komið, að það fyrirkomulag, sem nú væri á Búnaðarfél., væru allir óánægðir með. Með því er í raun og veru viðurkennt alveg nægilega mikið til þess, að ég þyrfti ekki að svara þeim ádeilum, sem komu á þá uppástungu, að rannsaka samkv. þessari till., sem hér liggur fyrir, og reyna að koma á endurbótum á núv. fyrirkomulagi.

Það er alveg satt, sem hv. þm. Mýr. sagði, að fyrirkomulagið er þannig, að allir eru óánægðir. Í því sambandi vil ég benda á það, að búnaðarþingið hefir hvað eftir annað — ég hygg þrjú búnaðarþing — samþ. áskorun til stj. Búnaðarfél. að hafa búnaðarmálastjórann einn, en þessari fyrirskipun hefir ekki verið hlýtt. Stjórn Búnaðarfél. hefir ekki reynzt þess megnug. Þó að auglýst hafi verið eftir búnaðarmálastjóra, þá hefir hún ekki reynzt þess megnug að fara eftir þessum fyrirmælum búnaðarþingsins. Það er því eðlilegt, þó að hv. þm. Mýr., sem ég veit, að hefir gert mikið til að framfylgja þessari kröfu búnaðarþingsins, en hefir ekki reynzt fært að koma því fram, vilji nú láta samþ. till. í þá átt, að þessi mál komist í það horf, sem búnaðarþingið hefir farið fram á, að búnaðarmálastjórinn sé einn. Það er svo merkilegt, þegar er verið að halda því fram, sem felst í þessari till., að gera rannsókn og endurbætur á Búnaðarfél., að það liggur einmitt fyrir till. frá tveimur öðrum hv. þm., sem sýnist fara í líka átt, að vilja fá einhverja íhlutun frá Alþingi um skipulagsbreyt. í þessum efnum. Annars virðist mér, að það sé nokkur ágreiningur um þetta atriði. Samkv. þeirri till., sem kom fram í fjárl. í upphafi, er ætlazt til, að bændur fái fullkomin yfirráð yfir Búnaðarfél., fullkomna sjálfsstjórn á sínu eigin félagi, og er það í samræmi við þá hugmynd, sem var í breyt. á jarðræktarl. En eftir að sýnt var, að sú till. hafði ekki mikinn byr meðal þm., þótti eðlilegt að breyta till. í það horf, sem nú hefir verið gert og ég get gert mig ánægðan með. En hjá Bændafl.mönnum. bæði hér í d. og utan þings, virðist ríkja sú skoðun, að Búnaðarfél. eigi að vera ósjálfstætt. Má benda á það, að fyrrv. landbúnaðarráðh. hefir ekkert gert til þess, meðan hann hafði vald til að breyta skipulagi félagsins í það horf, að Alþingi eða landbn., eins og nú er, réðu ekki meiri hl. í stjórn Búnaðarfél.

Jafnframt þessu má svo benda á það í þessu sambandi, að þegar þessir menn, sem nú skipa stj. Búnaðarfél., voru kosnir sem fulltrúar af landbn., þá hefði verið eðlilegt að setja þessa menn, en skipa þá ekki til 2 ára, og koma þannig í veg fyrir, að það yrði eins auðvelt að breyta fyrirkomulaginu í annað horf. Af aðgerðum fyrrv. landbúnaðarráðh., bæði viðvíkjandi því, að fara þessa ákveðnu braut og jafnframt því, að skipa en ekki setja menn í stj., má draga þá ályktun, að hann hafi verið fylgjandi því fyrirkomulagi, sem hingað til hefir verið, að Bf. Ísl. væri háð Alþingi.

Um þetta fyrirkomulag skal ég annars ekki mikið segja, en til þess að menn fái nokkru meira yfirlit yfir þessi mál, þá vil ég leyfa mér að lesa upp álit þess manns, sem ég vænti, að hv. þm. taki nokkurt mark á í þessu sambandi, en það er Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri. (HannJ: Hvenær er það skrifað?). Það mun vera skrifað 1933. Þetta eru till., sem hann gerði nokkru áður. Ég ætla að lesa þessar till. upp, til þess að sýna fram á það, að það hefir ekki við mikil rök að styðjast, þegar því er haldið fram, að fyrirkomulagið á Búnaðarfél. sé þannig, að ef orðuð er till. um að taka það til athugunar, þá sé það áreitni og jafnvel ofsókn á félagið, eins og hefir verið hreyft undir umr. um þetta mál. Sigurður segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Um nokkur ár hafa búnaðarmálastjórarnir verið tveir. Verksvið þeirra og störf nokkuð ruglingsleg, en út í það verður eigi farið nánar að sinni“.

Hér bendir hann m. a. á það, að störf búnaðarmálastjóranna séu ruglingsleg, og hann færir þau rök að því, að búnaðarmálastjórarnir hafi verið tveir. Það hefir aldrei fengizt leiðrétt þrátt fyrir það, þótt búnaðarþingið hafi skipað svo fyrir. Síðan rekur Sig. Sig. sérstaklega greinilega fyrirkomulag búnaðarfélaga erlendis, hvernig þau séu í Danmörku, hvernig í Noregi, og þar hefir verið svipað fyrirkomulag og hér hefir ríkt hingað til. Þessi skýrsla er svo löng, að ég vil ekki tefja tímann með því að lesa hana alla upp, en vil aðeins lesa upp niðurstöðuna af þessari athugun Sig. Sig., með leyfi hæstv. forseta. Eftir að hann hefir í stórum dráttum rakið fyrirkomulag og starfsemi Búnaðarfél., segir hann svo:

„Víða er pottur brotinn, má segja um allan vorn félagsskap og þjóðfélagsskipulag. Eigi mun búnaðarmálum verr komið en öðrum. Allt þarf endurbóta við, svo að starfskraftar og það fé, sem til eins og annars er varið, komi að sem fyllstum notum. En til þess að hægt sé að færa þetta í betra horf, þarf að vera ljóst, hvernig hið raunverulega ástand er, og skýrt, hverju er ábótavant. Í raun og veru er þetta allt eðlilegt og eigi verra en ætla mætti. Á breytingatímum sem þeim, er vér lifum nú á, er allt losaralegt og óákveðið. Tíminn og reynslan mun koma því síðar í fastari skorður. Nágranna vora hefir það kostað áratugi og langan aðdraganda að mynda það skipulag, sem þeir nú hafa á stjórn búnaðarmála sinna. Vorar búnaðarumbætur og breytingar eru aðallega á þessari öld, og mestar breytingar á hinum síðasta áratug. Undrunarvert, hverju er áorkað, ef litið er til allra ástæðna.

En ef vér hinsvegar hugleiðum allar ástæður búnaðar vors og stjórn búnaðarmála, þá er ljóst, að mörgu er ábótavant. Að finna nýjar leiðir og breyta til batnaðar er vandinn. Hér er aðeins að ræða um, hvernig stjórn búnaðarmálanna sé fyrir komið. En það er hlutverk hennar að marka stefnurnar og sjá um, að það fé, sem ríkið veitir til búnaðarumbóta, komi að fullum notum“.

Síðan kemur hann með mjög eftirtektarverða till., sem er ekki í sem beztu samræmi við skoðun hv. Bændafl.-manna, eða a. m. k. ekki í samræmi við skoðun hv. fyrrv. landbúnaðarráðh. Hann segir:

„Hér er um tvennskonar verkefni að ræða: Að sjá um framkvæmd lagaboða og marka nýjar stefnur.

Að sjá um framkvæmd laga er ríkisvaldsins. Ef þetta á að fara vel úr hendi, þarf að stofna nýja skrifstofu í stjórnarráðinu, sem hefir yfir nægum starfskröftum að ráða með þekkingu á búnaðarmálum. Það myndi kosta allmikið fé. Að öðrum kosti getur ríkisstj. falið Búnaðarfél. Ísl. (svo sem það nú að nokkru gerir) að fara með búnaðarmálin, sjá um eftirlit og framkvæmd laga. Þetta hyggjum vér heppilegast sem nú standa sakir“.

Síðan skilgreinir hann hinn starfsliðinn, „að marka nýjar stefnur“. En það er auðséð, að þótt hann álíti þetta sem er, heppilegast eins og nú standa sakir, þá er það þó eindregið álit hans, að stofna þessa sérstöku deild í stjórnarráðinu, en meðan ekki er hægt að koma því í kring, verði réttast að una við það, sem við höfum nú.

Þá kemur hann að því, hvernig fyrirkomulagið yrði að vera:

„Búnaðarmálastjórinn og hlutaðeigandi starfsmenn hafa með þessi mál að gera undir yfirstjórn atvinnumálaráðuneytisins. þetta yrði lík aðstaða og nú er með vegamálastjóra, póstmálastjóra og símstjóra o. fl.“.

Að síðustu kemur hann að því, hvernig hann vill láta breyta l. Búnaðarfél., og skal ég lesa það upp, með leyfi hæstv. forseta:

„Á eftir 15. gr. komi ný gr., sem verður 16. gr. og hljóðar svo:

Öll framkvæmd mála, sem falin eru Búnaðarfélagi Íslands með sérstökum lögum, eða sem atvinnumálaráðherra felur því, skal vera í aðalumsjá búnaðarmálastjóra með hlutaðeigandi starfsmönnum (sérfræðingum) undir yfirumsjón atvinnumálaráðuneytisins. Afgreiðslu þessara mála þarf eigi að leggja fyrir stjórn Búnaðarfél. Í fjárhagsáætlun og reikningum Búnaðarfél. skal tilgreint, hve mikið afgreiðsla þessara mála kostar félagið“.

Í samræmi við þetta er ein breyt. á jarðræktarl., svo að Búnaðarfél. geti að öllu leyti starfað sem sjálfstætt félag.

Hér kemur þá það fram ljóst og greinilega, að Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri, sem er þessu allra manna kunnugastur og starfar þarna sem einn aðalmaðurinn, hann álítur ástandið þannig, að það sé óviðunandi, og það vita allir, að hér talar maður, sem hefir reynslu og þekkingu á þessum málum og gengur ekki annað til en að koma félaginu í það horf, sem hann veit sjálfur samkv. sinni reynslu, að sé það bezta fyrir búnaðarfélag þessa lands. Ég vona því, að það verði ekki talin ein goðgá, þó að fram komi till. um að rannsaka félagið og starfsemi þess og reyna svo að koma með nýtt og betra skipulag.