27.11.1934
Neðri deild: 46. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (2989)
109. mál, dragnótaveiðar í landhelgi
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Úr því að farið er að ræða um málið almennt, þá sé ég enga ástæðu til þess að sitja hjá. Ég hafði að vísu gefið hæstv. forseta loforð um að vekja ekki deilur um málið, en ég vona, að hann skoði það ekki nein brigðmælgi af minni hálfu, þó ég taki nú til máls úr því farið er að ræða málið.
Hv. þm. Vestm. sagði, að það væri hart að þurfa að setja kjósendur sína á lægra bekk en aðra landsmenn. Það var gott að heyra þetta frá honum, því að það, sem felst í frv., er einmitt það, að gera sjómönnum, sem búa í nokkrum hluta landsins, lægra undir höfði en öðrum. Þ. e. a. s., að þeir sjómenn, sem búa á svæðinu frá Ingólfshöfða að Látrabjargi, eru gerðir réttlausir um sum atriði, þar sem aðrir hafa full réttindi. Það er gott að fá viðurkenningu á þessu hjá hv. þm. Vestm. Hann finnur nú auðvitað ekki til þessa ranglætis, nema hvað það snertir hans kjósendur, og sýnir það bara þröngsýni hans. Það er líka gott að fá viðurkenningu á þessu, því að það varpar ljósi yfir þann grundvöll, sem þetta mál hefir hvílt á, og er þetta ólíkt því, sem á að fara að þegar verið er að semja l. á hv. Alþ. Að segja, að þetta sé atvinnuspursmál, er rangmæli. Ef þeir, sem búa á þessu svæði, álíta þetta atvinnuspursmál fyrir sig, þá á að leyfa það. En ef það skerðir atvinnurekstur þeirra á annan máta, þá á að banna það. En það er eitt, sem á að gera, og það er að halda áfram á þeirri braut, sem hv. þm. Vestm. er kominn inn á með því að taka aftur brtt. sína. Það á að halda þar áfram og fella frv.