16.11.1934
Neðri deild: 38. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2284 í B-deild Alþingistíðinda. (3026)
148. mál, stimpilgjald
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég tek það ekki illa upp fyrir hv. þm. G.-K., þó að hann meti meira bankastjóra Landsbankans heldur en mig um það, hvernig eigi að reka bankastarfsemi. Þeir eru hæfir menn og ég met þá mikils. En samt sem áður reyni ég af minni litlu þekkingu að dæma um þau rök, sem þeir færa fram, og þeirra rök í þessu efni eru ekki sannfærandi fyrir mig. Bankastjórar hafa þráfaldlega sýnt tilhneigingu til þess að reyna að hindra það, að gjöld séu lögð á þau viðskipti, sem bankar hafa. Þetta er almennt sjónarmið bankastjóra fyrir hönd þess almennings, sem við bankana skiptir. En það er annað sjónarmið heldur en þeir þurfa að hafa, sem eiga að sjá ríkinu fyrir nauðsynlegum tekjum. Ég játa það, að þetta muni vafalaust draga úr notkun smátékka. En það er ekki nóg að segja, að slíkt stimpilgjald sem þetta dragi úr notkun smátékka, heldur verður líka að sanna það, að smátékkar séu heppilegri gjaldeyrir heldur en bankaseðlar. Og ég efast algerlega um, að smátékkar séu á nokkurn hátt heppilegri fyrir þjóðfélagið eða bankana heldur en notkun seðla, því að það er þeirra verkefni að vera gjaldmiðill í smærri greiðslum.
Ég hefi svo ekki fleira að segja, og ekki fleiru að svara.