30.11.1934
Sameinað þing: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í B-deild Alþingistíðinda. (303)

1. mál, fjárlög 1935

Sigurður Kristjánsson:

Ég á hér eina brtt. á þskj. 602, rómv. liður XVIII, um að veita ungum listamanni Kristjáni Magnússyni málara, byggingarstyrk til þess að koma sér upp vinnustofu. Ég er kunnugur lífsbaráttu þessa manns, þó að ég hafi ef til vill minni kunnugleika á list hans en ýmsir aðrir. Ég hefi þekkt þennan mann frá því hann var barn að aldri, því að ég var kennari hans og þekkti því framferði hans bæði í skólanum og heimahúsum. Hjá honum var alltaf sama prúðmennskan og skylduræknin. Eftir að hann fór úr foreldrahúsunum var jafnan hið sama af honum að frétta, hann vann sér jafnan traust og virðingu þeirra, sem kynntust honum. Slíkar fréttir af nemendum manns gleðja mann alltaf. Þessi ungi maður er Ísfirðingur að ætt. Hann átti góða foreldra og ólst upp hjá þeim og var þeim jafnan til gleði og ánægju. Þegar hann hafði lokið því litla námi, sem foreldrar hans höfðu efni á að veita honum, sem var aðeins hin almenna barnafræðsla og unglingafræðsla, hélt hann út f heiminn sjálfur félaus og ungur. Til Ameríku komst hann svo, með því að vinna sem starfsmaður á skipi. Hugur hans hneigðist snemma til málaralistar, og komst hann inn í málaraskóla í Ameríku aðeins fyrir framkomu sína, sem hann vinnur allra traust með. En það er til marks um elju hans og hæfileika til að koma sér vel áfram og ávinna traust, að hann svo ungur skyldi ryðja sér braut gegnum 6 ára listanám í ókunnri heimsálfu, algerlega án nokkurs styrks héðan að heiman. Enda hafði hann aldrei beðið um styrk til námsins. Síðan hann kom heim, hefir hann stundað list sína, bæði hér á landi og erlendis. Hann hefir ferðazt til Bandaríkjanna, Englands og Svíþjóðar og verið svo lánsamur að vekja þar talsverða eftirtekt á listaverkum sínum. Hann hefir fengið þar aðgang að sýningarstöðum fyrir lítið verð og selt talsvert mikið af málverkum erlendis. Hann mun eiga kost á því, víðar en á einum stað, að sýna myndir sínar erlendis fyrir ekki neitt. En auðvitað verður hann að kosta ferðalögin og allan umbúnað á málverkum sínum og flutning þeirra, og til þess þarf allmikið fé.

Ég lít svo á, að það sé alls ekki óverðugt, ef hægt væri að rétta honum hjálparhönd, svo að hann geti notið sín til fulls, þar sem hann er orðinn svo þroskaður maður í list sinni. Það, sem stendur honum mest í vegi, er skortur á vinnustað, skortur á húsnæði til að vinna að málverkum sínum. Ég mun ekki hreyfa dómum þeim, sem hann hefir hlotið, innanlands og utan, fyrir málverk sín; en dómar þeir, sem hann hefir hlotið, einkum erlendis, eru eindregið honum til lofs; að sönnu hóflegir, því að svo ungur maður getur varla verið orðinn meistari í þessari grein listarinnar; en hann þykir óvenjulega frumlegur og efnilegur listamaður sem byrjandi. — Þeir dómar, sem hann hefir fengið hér á landi, eru að vísu nokkuð misjafnir og ég hefi áður tekið það fram, að menntamálaráðið hefir aldrei keypt málverk af Kristjáni Magnússyni. Í því felst að líkindum óhagstæður dómur annaðhvort fyrir hann eða menntamálaráðið sjálft. Ég ætla mér ekki að gera þar upp á milli. En Kr. M. hefir fengið aðra óbeina dóma, en það eru dómar þeirra manna, sem meta list hans svo mikils, að þeir hafa keypt mikið af málverkum hans. Á þessum óbeinu dómum hefir Kristján Magnússon getað framfleytt sér.

Nú er það öllum ljóst, að fjárhagur ríkissjóðs er ekki glæsilegur. Margir biðja um styrk úr ríkissjóði; en fáir hafa þó dregið það lengur en þessi ungi og efnilegi listamaður.

Það er ekki fordæmislaust hér á Alþingi, að listmálarar séu aðstoðaðir til þess að koma sér upp vinnustofum, sem Kristján Magnússon vantar svo tilfinnanlega. Einstöku málarar hafa fengið bæði styrk og lán úr ríkissjóði til þess, og ég ætla, að það sé mjög vel til fallið, að hann njóti sömu réttinda og þeir. — Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en vænti svo góðs af hv. þm., að þeir synji ekki þessu erindi, án þess þó a. m. k. að kynna sér verk hans og hvort ég hefi farið með rétt mál. Vona ég, að þeir, sem þykjast dómbærir um myndir hans, geri sér það ómak að líta á þær. Fel ég svo þingheimi að skera úr þessu á réttan hátt.

Ég gat þess, að ég ætti ekki fleiri brtt. við fjárlfrv. En fyrst ég er staðinn upp, þá langar mig til að bæta nokkrum orðum við um það málefni, sem mest hefir verið um deilt í þessum umr., en það er Búnaðarfél. Ísl. Ég hlýt að líta svo á mál þetta, að það sé nokkuð blandað óhreinum efnum, því það er ekkert leyndarmál, að reynt hefir verið í mjög ríkum mæli að draga þetta markverða, en fyrir margra hluta sakir ógæfusama félag inn í landsmáladeilurnar. Fyrir nokkrum árum síðan skrifaði ég í fjöllesið blað um Búnaðarfél. Ísl., og þar lét ég þá skoðun mína í ljós, að félagið ætti að fá að starfa í friði fyrir pólitískri áreitni. Bændur ættu að ráða því sjálfir, hvernig félagið væri byggt upp. Taldi ég þá heppilegast það skipulag, sem nú er orðið lögfest, að bændur væru allir í hreppabúnaðarfélögum, er sameinuð væru í búnaðarsambönd og að búnaðarsamböndin sendu fulltrúa á búnaðarþing. En búnaðarþingið ætti að hafa rétt til þess að kjósa stjórn fyrir félagið, sem síðan kysi framkvæmdastjóra félagsins, er kallaður hefir verið búnaðarmálastjóri, og réði félagsstjórnin jafnframt aðra starfsmenn þess.

Ég skal taka það fram, að mér var þá vel kunnugt um, þegar ég hélt þessu fram, að þáv. fulltrúar, sem sæti áttu á búnaðarþingi, voru ekki ópólitískir. Og flestir voru þeir í andstöðuflokki mínum og minna flokksbræðra í landsmálum. En ég taldi ekki fært að fara eftir því, og sé ekki, að það sé réttmætt að líta á slíkt. Og hvað mikið sem menn berja sér á brjóst og geipa um hollustu sína við Búnaðarfél. og bændur, þá trúir því enginn maður, að þetta veður, sem nú er gert út af B. Í., sé af öðru spunnið en pólitískum toga. Síðan Framsfl. fór að seilast til valda í landinu, hefir það verið eitt aðaláhuga- og kappsmál hans að ná yfirráðum í B. Í. og gera félagið að pólitískri lyftistöng fyrir flokkinn. Nú víkur því þannig við, að nokkur hluti hefir klofnað út úr Framsfl. og gengið í Bændafl., og er þar af leiðandi ekki af sama tægi í svip inn. En þessi óvild stjórnarflokkanna til B. Í. er sprottin af því, að þeir, eða Framsfl., hefir nú ekki meirihlutaráð í stjórn Búnaðarfél. Það þýðir ekkert fyrir framsóknarmenn að vera að setja á sig helgisvip fyrir mér eða öðrum skynbærum mönnum. Kritur þeirra gegn B. Í. er beinlínis sprottinn af því, að stjórnarflokkarnir hafa ekki meiri hl. í stjórn B. Í. Það er vitanlega ekkert annað en barnaskapur af þeim að fara því á flot, að Alþingi þurfi nú endilega að setja B. Í. lög. Þetta er sjálfstæður félagsskapur, sem setur sér sjálfur lög. Alþingi ræður ekki yfir Búnaðarfél. á neinn annan hátt en þann, að það getur vitanlega synjað því um styrk úr ríkissjóði. Það er eina leiðin fyrir þingið. Ég ætla ekki að fara að halda því fram, að þessi aths. í fjárlfrv., um að Alþingi skuli hafa íhlutunarrétt um stjórn og skipulag B. Í., og jafnframt að landbrh. skipi búnaðarmálastjóra, sé sprottin af fjandskap hæstv. ríkisstj. til bænda yfirleitt, en hún er áreiðanlega sprottin af óvild til sjálfstæðra bænda. Hún er sprottin af því, að hv. stjórnarflokkar vilja alls ekki hafa sjálfstæða bændur. Bændur mega ekki fá að byggja sjálfir upp félagsskap sinn. Það er ekkert undarlegt, þó að þessi rödd heyrist nú hér á Alþingi, því það er vitanlegt, að sú stefna er nú uppi hjá meirihl.-flokkunum í þinginu að taka af bændum og öðrum einstaklingum í þjóðfélaginu allt sjálfræði og möguleika til þess að bjarga sér af eigin framtaki. Þessi viðleitni stingur m. a. upp höfðinu, alveg ófeimnu, í háværum kröfum um það, að jarðeignirnar skuli teknar af bændum og lagðar undir ríkið. En það leiðir vitanlega til þess, að bændastéttin verður ósjálfstæð og háðari því valdi, sem óbilgjörn ríkisstj. vill beita, þegar henni býður svo við að horfa, heldur en ef bændurnir væru húsbændur á sínum heimilum.

Það voru lesin hér áðan upp nokkur ummæli eftir Sigurð Sigurðsson búnaðarmálastjóra. Mér var nú að vísu aldrei vel ljóst, hvað af því var beinlínis tínt upp eftir Sig. Sig. og hvað var hinsvegar umsögn hæstv. forsrh. sjálfs. En svo mikið fékk ég þó út úr því, sem hann las, að Sig. Sig. vildi fá því framgengt, að ríkisstj. fengi aukna þekkingu á búnaðarmálum. Ég held það sé nú að vísu ekki ósanngjörn krafa frá manni, sem búinn er að starfa svo áratugum skiptir að landbúnaðarmálum þjóðarinnar og vera frömuður á því sviði. Ég held ennfremur, að það sé engin vanþörf á þessu, einkum þegar það er athugað, að hjá núv. ríkisstj. eru dálítið sérstakar ástæður í þessu efni og lítið um þekkingu á búnaðarmálum. En þó að Sig. Sig. telji þetta æskilegt, þá raskar það ekki því, að Búnaðarfél. Ísl. fái að vera sjálfstæð stofnun. Og ég get ekki skilið hugsunarhátt þeirra manna, sem ætla að láta Alþingi grípa fram fyrir hendurnar á bændum um það, hvernig þeir eigi að byggja upp sinn eiginn búnaðarfélagsskap.

Það er alveg rétt sú samlíking, sem hv. þm. Mýr. (BÁ) hafði um þann félagsskap, sem bændurnir byggja sjálfir upp frá rótum, og hinsvegar þann félagsskap, sem reistur er og rekinn samkv. fyrirskipunum frá ríkisvaldinu; sá fyrrnefndi þróast á frjálsan hátt eins og beinvaxinn meiður með djúpar rætur, en hinn er eins og tré, sem múrað er í kringum við malbikaða götu til skrauts og sýnis. Þess vegna furðaði mig stórlega á því, eins og hv. þm. Mýr. færði góð rök að því, að búnaðarfélagsskapur bænda ætti að byggjast upp af þeim sjálfum á sjálfstæðan hátt — mig furðaði á því, að sá rökstuðningur hans skyldi enda á yfirlýsingu um, að hann gæti gengið inn á brtt. frá meiri hl. fjvn. á þskj. 582. En hún er um það, að ríkisstj. skuli falið að undirbúa till. um framtíðarskipulag Búnaðarfél. Ísl. Það er dálítið einkennilegt, ef hæstv. ríkisstj., og þá þessi ríkisstj., á að hafa betra vit á því en bændurnir sjálfir þessir menn í ríkisstj., sem mér vitanlega hafa ekki neina þekkingu á því, sem gerist í sveitunum, né á málum landbúnaðarins yfirleitt, eins og kjötsölulögin bera ljósastan vott um, því að þau eyðileggja gersamlega búskap bænda í sumum héruðum landsins. Þá er eggið sannarlega farið að kenna hænunni, ef þessi hæstv. ríkisstj. á að kenna bændum, hvernig þeir eiga að reka félagsskap sinn. Og þá þykir mér skörin farin að færast upp í bekkinn, ef Alþingi ætlar að taka undir þessar hótanir sósíalistaflokkanna til bænda og segja: Þið getið fengið styrk úr ríkissjóði til Búnaðarfél. Ísl., ef þið krjúpið á kné, varpið ykkar vilja og félagsskipulagi fyrir borð og samþykkið ráðstafanir ríkisstj., sem hefir ekkert vit á þessum málum og vill ekki þiggja ráð af bændum. Mér þykir ekkert undarlegt, þó að hæstv. ríkisstj. hafi komið þessi firra í hug; en hinu vil ég ekki trúa, að meiri hl. Alþ. gangi inn á slíkt glapræði.

Það má vel vera, að þetta stefni til þess að gera bændur rótlitla og ófrjálsa í vinnurekstri sínum. En hitt er víst, að það styrkir þá ekki í atvinnubaráttu þeirra eða til þess að byggja upp gagnlegan félagsskap.