28.11.1934
Efri deild: 49. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2288 í B-deild Alþingistíðinda. (3058)

148. mál, stimpilgjald

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Mér þykir rétt að láta fylgja frv. þessu nokkur orð. Það er flutt af meiri hl. fjhn. Nd. að minni tilhlutun. Um ástæður fyrir því, að frv. er flutt, nægir að vísa til þess, sem áður hefir verið tekið fram um afkomu ríkissjóðs og horfur, því að þó að svo verði, að þau tekjuaukafrv., sem stj. hefir lagt fyrir Alþingi nú, verði samþ., er ekki von um, að fullkominn jöfnuður fáist á fjárl. 1935, og því er frv. þessu bætt við. Hvaða tekjur þetta kemur til með að gefa, er ekki hægt að gera sér í hugarlund nú, og því ekki hægt að nefna neinar tölur, en einhvers stuðnings af því er þó að vænta.

Um þetta stimpilgjald er það að segja, að það er áframhald af því stimpilgjaldi, sem hér hefir verið áður. Nú á það að ná til ávísana og kvittana. Gjald þetta er einskonar tollur eða skattur á veltu, og því ekki hægt að gera sér grein fyrir, hvernig það kemur endanlega niður á gjaldendunum.

Við Íslendingar erum ekki einir um að taka gjald þetta upp, það hefir verið notað í ýmsum löndum, t. d. í Bretlandi. Þar hefir það verið um 2 pence eða um 18 aur. á ávísun. Annars mun reynslan vera sú, að þar, sem gjald þetta hefir verið tekið upp, hefir það verið látið haldast.

Þegar frv. lá fyrir Nd., var það sent til stj. Landsbankans og hún beðin umsagnar um það. Bankastj. sendi svo umsögn sína, sem prentuð er sem fskj. með nál. minni hl. fjhn. Leggur hún frekar á móti þessu gjaldi, sérstaklega með þeim rökum, að það muni verða til þess að minnka notkun ávísana, sem útheimti aftur meiri seðla í umferð til þess að sami viðskiptahraði haldist. Þetta getur vel verið rétt, en ég er ekki viss um, að það sé neitt heppilegra að nota tékka, a. m. k. ekki fyrir lágum upphæðum, en seðla. Ég tel því ekki, að hægt sé að stoppa frv., þó að stjórn Landsbankans leggist á móti því með þessum rökum, því að ekki er annað en auka seðlaútgáfuna lítið eitt, svo að þetta þurfi ekki að hafa bein áhrif á viðskiptalífið. Þá hefir verið bent á það af stj. Landsbankans, að það myndi léttara í framkvæmd að hafa gjaldið aðeins eitt fyrir allar ávísanir, en ekki stighækkandi. Í 3. gr. frv. er heimild fyrir ráðh. að hafa eitt og sama gjald af öllum ávísunum. Verði frv. að lögum, þá mun ég nota þessa heimild og hafa alltaf sama gjald, án tillits til upphæðar ávísananna.

Sé ég svo ekki ástæðu til þess að hafa orð þessi fleiri, og óska frv. vísað til fjhn. að umr. lokinni.