11.12.1934
Efri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2289 í B-deild Alþingistíðinda. (3061)
148. mál, stimpilgjald
Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):
Meiri hl. fjhn. ber fram brtt. við 4. og 5. gr. frv. á þskj. 712. Fyrri brtt. er við 4. gr., og er um það, að stimpilskyldan hvíli á framseljanda ávísana, sem gefnar eru út erlendis, óstimplaðar, og sendar hingað til greiðslu. Till. miðar að því að skera ákvæði frv. að því er viðkemur þesskonar ávísunum, og er þá tilætlunin, að stimpilgjaldið komi alltaf á útgefandann, og þann yfirleitt, sem sendir hingað erlendar ávísanir til innheimtu. Þetta verður þá á sama hátt að því er þessa nýju stimplun snertir eins og hingað til hefir verið með erlenda víxla.
2. brtt. n. er við 5. gr. og er í 3 stafliðum. a-liður, við A, 3 í 5. gr. frv., er um það, að undanþiggja stimpilgjaldi þessu ávísanir þær, sem fara eiga til greiðslu í bæjar- og sveitarsjóði, á sama hátt og frv. sjálft ákveður, að svo skuli vera um ávísanir, er greidd séu með gjöld til ríkissjóðs. Meiri hl. n. finnst það sanngjarnt, að sama gildi í þessu efni um bæjar- og sveitarsjóðsgreiðslur. En því til tryggingar, að ekki verði „svindlað“ með þetta á neinn hátt, vill n. áskilja það, að framsal skattheimtumanns, hvort er ríkis-, bæjar- eða sveitarsjóðs, sé ritað á ávísanirnar. — Þá er b-liður, við B, 1. í 5. gr., og fjallar sá liður um að undanþiggja kvittanir fyrir greiðslum upp í föst lán stimpilgjaldi, ennfremur kvittanir fyrir úttekt úr sparisjóðsbókum. Frv. kveður svo á, að undanþegnar stimpilgjaldi skuli vera kvittanir fyrir innborgunum í eiginn reikning, en greiðsla upp í föst lán er eiginlega ekkert annað en greiðsla í eiginn reikning. Er því þessi till. n. í beinu framhaldi af þeirri hugsun, sem til grundvallar liggur fyrir tilsvarandi ákvæðum frv., og er þessi till. því einungis borin fram til samræmingar. — Þá er c-liðurinn. Hann er um það, að eins og ávísanir til greiðslu opinberra gjalda verða ekki stimpilskyldar, þá skuli ekki heldur kvittanir fyrir gjöldum í bæjar- og sveitarsjóði stimpilskyldar, eins og frv. sjálft ákveður um kvittanir fyrir gjöldum til ríkisins. Þessi liður er í samræmi við a-lið þessarar till., og byggist á því, að sveitar- og bæjarsjóðir njóti sama réttar, ef svo má að orði komast, og ríkissjóður.
Það er auðvitað augljóst mál, að ef þessar till. verða samþ., minnkar dálítið tekjuvonin af þessu frv., ef að l. verður, en þrátt fyrir það verður meiri hl. n. að líta svo á, að þessi atriði séu svo mikið sanngirnismál og svo eðlilegt að samþ. þau, að það verði fram að ganga. Um önnur atriði vil ég ekki fjölyrða neitt, þar sem hæstv. fjmrh. er staddur hér í d. og getur þá að sjálfsögðu tekið til máls, ef honum finnst ástæða til.