11.12.1934
Efri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2290 í B-deild Alþingistíðinda. (3062)

148. mál, stimpilgjald

Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson) [óyfirl.]:

Ég vil taka það fram fyrir mitt leyti, að ég er í sjálfu sér ekkert fyrirfram andvígur skatti eitthvað í þessa átt, sem hér er um að ræða og tíðkast sumstaðar erlendis, sérstaklega ef hann er gerður eins einfaldur í framkvæmd og unnt er. Á hinn bóginn verð ég að segja það, að mér finnst þetta mál tæplega svo undirbúið, að rétt sé að samþ. það að svo komnu, og hefi ég því lagt til, að það yrði að þessu sinni fellt. Þótt ekki sé hér um háan skatt að ræða, þá er um alveg nýjan skatt að ræða og skatt, sem grípur ótrúlega víða inn í dagleg viðskipti fyrir öllum þorra manna, a. m. k. í kaupstöðum og kauptúnum, og það er ekki svo gott að sjá í byrjun, nema athuga það vel og vandlega, hvaða afleiðingar það kann að hafa í för með sér og í hvaða átt þær afleiðingar stefna. Það er augljóst, að þau tvö atriði, sem dregin eru fram í bréfi Landsbankastj. og ég hefi minnzt á, munu fram koma. Annað atriðið er það, að hætta sé á því, að á einhvern hátt dragi úr tékkaviðskiptunum. Þau hafa tíðkazt mikið, sérstaklega hvað viðkemur smáupphæðum. Og hjá þeim mönnum, sem mikið nota þessi viðskipti, er það ekki lengi að draga sig saman, og menn myndu kveinka sér við, ef þeir ættu að greiða þá upphæð í einu lagi. Það þarf ekki marga tékka yfir 20 kr. til þess að það fari að nálgast tekjuskattsupphæðina, sem maðurinn þarf að greiða í stimpilgjald yfir árið, eða þá jafnvel útsvarsupphæð. Og menn munu kveinka sér við að greiða þetta gjald, þegar þeir geta hliðrað sér hjá því. Nú er það tvímælalaust, að tékkanotkunin er handhæg, og bankarnir reyna ákaflega mikið til þess að reyna að örva hana sem allra mest. Ég man það, að í Vesturheimi kepptust bankarnir við að troða á menn fínum skinnávísanaheftum til þess að fá menn til að ávísa á bankann og geyma fé sitt þar. Þótt það muni ekki miklu, hvort einstaklingur tekur út 100 kr. í einu eða ávísar á þær smátt og smátt, þá getur þetta allt í allt munað hundruðum þúsunda í veltufé bankans. Það kemur fyrir, að þær greiðslur, sem menn þurfa að inna af hendi, dragast nokkra daga. En í stað þess að leggja fé á meðan í bankann, þá nota menn allra óhyggilegustu og heimskulegustu aðferðina til þess að geyma það, nfl. ganga með það í vösum sínum, engum til gagns, í stað þess að láta það vera í umferð í banka, auk þess sem féð dregur á þann hátt vexti. Tékkaviðskiptin eru mjög hentug, því að þau auka starfsfé bankanna um töluverðar fjárhæðir, um leið og peningarnir gefa eigendunum vexti. Ég býst við, að úr þessum viðskiptum myndi draga, ef frv. þetta yrði samþ. Það er ekki víst, að það nemi svo miklu, að við það þurfi að hika að setja þennan skatt á, en það er þó athugunarefni. Enda er það nú svo, að búast má við því, að sá trassaskapur, sem hér á sér stað með að taka kvittanir fyrir greiðslum sínum, fari í vöxt, þegar hrein og bein sparnaðarhvöt bætist við hinn venjulega trassaskap, og geta úr því orðið deilur. Þessi trassaskapur í viðskiptum er heiðraður með löggjöf eins og þessari. Menn verða að greiða, að vísu lítið en þó dálítið fyrir það að taka kvittun. Af þessum 1. leiðir einnig töluverða vinnu. Ég átti tal við einn kolakaupmann um þetta frv., þegar það kom fram. Hann situr einn á sinni skrifstofu og annast verzlunina sjálfur. Hann sagði, að þetta myndi auka sína vinnu, svo að hann myndi verða að fá sér aðstoð. Það er ekki lítill erfiðisauki, þegar ½ tonn af kolum er orðið stimpilskylt, og slíkar smásendingar er alltaf verið að senda út um allan bæ. Þetta er nú bara eitt einstakt dæmi. En svona er fyrirhöfnin hjá öllum búðunum, sem mánaðarlega senda út tugi af reikningum, jafnvel þúsund. Menn eru að greiða inn á þetta smátt og smátt. En mér skilst, að ef greiddar eru 20 kr. inn á reikning, þá sé það orðið stimpilskylt, og innheimtumaðurinn verður að burðast með stimpilmerki með sér. Þetta verður til þess, að margur mun nú frekar freistast til þess að greiða heldur 19 kr. en 20, eða skipta greiðslunni í tvennt. (Fjmrh.: Eða láta koma eftir því dag eftir dag!). Þetta eykur stórkostlega fyrirhöfn þeirra manna, sem eiga að innheimta, og þótt mönnum sé e. t. v. ekki hlýtt til rukkaranna, þá held ég, að ekki sé rétt að leggja á þá erfiði og þyngja þeim sporin með l. Þetta skapar allt saman mikla aukavinnu og gerir viðskiptin umfangsmeiri. Mér finnst samþ. þessa frv. vel hefði mátt bíða. Það er rétt með þetta mál eins og önnur nýmæli, að þau séu látin koma fram til athugunar og umtals, en bíða með samþykkt þeirra. Og þótt það verði virt mér til stjórnarandstöðu og óþekktar í þinginu að leggja til, að þetta mál bíði enn um stund, þá vil ég taka það mikið tillit til stjórnar þjóðbankans, að þegar hún ræður frá því að samþ. þetta, þá verði það ekki gert. Þeir segja, bankastjórarnir, að þeir hafi ekki haft fullkomlega tíma til þess að athuga einstakar gr. frv., og leggja til, eins og í bréfinu stendur, „hvort ekki væri rétt að athuga þetta mál frekar en orðið er og láta það svo koma fyrir þing í marzmánuði næstkomandi“. Ég teldi athugandi í þessu máli, hvort ekki ætti einungis að hafa gjaldið eitt. (Fjmrh.: Það er heimild til þess). En það er gengið út frá hinu í, gerðum ákvæðum frv. Stighækkunin gerir fyrirhöfnina enn meiri, því að þá þarf að nota fleiri en eina stimpilmerkjategund. — Ég hefi því, með stuðningi í þessu bréfi frá Landsbankanum, lagt til, að frv. verði fellt á þessu þingi. Ekki með þeirri grg., að ég sé andvígur slíkum skatti yfirleitt, en af því að ég tel málið ekki nægilega hugsað.