15.12.1934
Efri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2053 í B-deild Alþingistíðinda. (3078)

176. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Magnús Jónsson:

Það er eiginlega ekkert um þetta frv. að segja annað en það, að n. hefir farið yfir það og leggur til, að það verði samþ. óbreytt. — Eins og segir í grg. frv., er þetta ætlað til þess að greiða upp nokkrar skuldir, sem á ríkissjóði hvíla. — Grg. skýrir annars alveg frá því, sem þetta mál snýst um, og mælir n. með því, að frv. verði samþ. óbreytt.