11.12.1934
Efri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2300 í B-deild Alþingistíðinda. (3094)

148. mál, stimpilgjald

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:

Það er langt frá því, að ég firtist, þó að bent sé á ýms atriði, sem þurfi athugunar við. Meira að segja er ég þakklátur hv. 1. þm. Skagf. fyrir að hafa bent á ýmislegt, er athuga þurfi, og er gott að hafa þær bendingar til hliðsjónar. Er oft svo, að sá, sem er andvígur málinu, finnur betur gallana en hinn, sem er fylgismaður þess. Það kann vel að vera, að betur megi fara ákvæðið í 4. gr., eða orðalagið; ég skal ekki neita því.

Þá skal ég skýra, hvað átt er við með orðinu vöruávísun. Það var sett í frv. við 3. umr. í Nd. eftir till. fjhn. Ég álít það óþarft, en þetta er komið fram af því ýms samvinnufélög gefa ávísanir á vöruúttekt til félagsmanna sinna, eða réttara sagt ávísanaform, er gefur félagsmönnum rétt til úttektar fyrir ákveðna fjárupphæð, og er þá í reitum, svo og svo mikið í hverjum reit, og rifið af í hvert sinn, eða nóterað jafnóðum og tekið er út, svo sjáist, hvað tekið er út í reikninginn. (MG: Þetta mundi hver einasta verzlun í Rvík taka upp strax). En þetta eru ekki ávísanir í rauninni, heldur úttektarheimild, og er því óþarfi að hafa þetta í l., og mætti skýra þetta í reglugerð. Eins er um það, sem hv. þm. talaði um í sambandi við B-lið, um orðalagið á eða í reikning; er gott að skýra það í reglugerð.

Þá er það um kvittun fyrir úttekinni fjárupphæð. Það má segja, að hægt sé að gefa út plagg fyrir því, að þessi og þessi sé skuldlaus við hinn, og svo eigi það að vera kvittun fyrir greiddri fjárupphæð. Þetta er nú ekki hægt nema um lokagreiðslu sé að ræða, og er erfitt og að ýmsu leyti ókleift. Annars er hægt að athuga þetta á viðskiptareikningum. En það er náttúrulega kleift með þessi lög eins og önnur að brjóta þau. En ég held, að það sé ekki hægt að komast hjá því að nefna fjárupphæðina vegna lágmarksins, sem er ákveðið. En það þarf náttúrlega ekki endilega að vera kvittun, þó einhver gefi út plagg um, að annar sé skuldlaus. En það má athuga þetta síðar, og er síður en svo, að mér þyki miður, þó bent sé á þetta. Þetta, að hafa stimpilskyldu á kvittun, þó hún sé óundirskrifuð, álít ég að sé nauðsynlegt, enda er aldrei svo, að rithönd á kvittun þekkist ekki, og það er hugsanlegt, að reynt verði að gefa út viðurkenningu í líku formi og hv. 1. þm. Skagf. benti á.

Ég sé ekki ástæðu til að fara langt út í ræðu hv. þm. N.-Ísf. Hann talaði meira um aðra hlið málsins, sem sé þá almennu, og er búið að ræða það.

Í sambandi við það, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði um rannsókn þá, er fjmrh. er heimilt að láta gera hjá bókhaldsskyldum fyrirtækjum, mun aldrei verða gengið langt á þá braut. En ég vil benda á, að samkv. heimild í skattalögum er skattanefndum og skattstjórum heimilt að athuga skjöl og bækur slíkra fyrirtækja, verzlana og annara, og var ætlun mín, að þetta væri þá athugað um leið, eða notaðar þær aðstæður, sem þetta gefur, um leið og þeir inntu af hendi aðra embættisskyldu. Væri þetta þá ekki mikið verk. Þetta var það, sem fyrir mér vakti með því að setja þetta ákvæði inn í lögin.