11.12.1934
Efri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2304 í B-deild Alþingistíðinda. (3104)
148. mál, stimpilgjald
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það eru aðeins örfá orð. Í sambandi við 5. og 6. gr. ber að athuga, að þar er átt við, með kvittunum gefnum út fyrir víxlum eða ávísunum, móttökuyfirlýsingu á skjali. Hvort greiðslur til stofnana eins og gasstöðvarinnar, rafmagnsstöðvarinnar o. s. frv. væru stimpilskyldar, hafði ekki vakað fyrir mér, en það má athuga þetta fyrir 3. umr. (MJ: En póstkröfur?). Sá, sem sendi, yrði að sjá fyrir stimpilgjaldinu. Hann getur skilað merkjunum til póststofunnar án þess að þau séu límd á, og verður það þá ekki gert fyrr en póstkrafan er leyst út. Má allavega koma því fyrir. — Um öll þessi atriði þarf að setja nákvæma reglugerð, og það er einmitt þess vegna, sem horfið var að því ráði að láta ráðuneytið ákveða með reglugerð, hvenær l. öðlist gildi. Það þarf að vera búið að prenta tékkhefti og koma þeim út um landið, og búið að gera góða og nákvæma reglugerð um þetta allt áður en l. öðlast gildi.