30.11.1934
Sameinað þing: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (312)

1. mál, fjárlög 1935

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Hv. forseti sagði, að ekki mundi vera ástæða til að lengja umr. Þegar hv. þm. Mýr. hélt sína löngu ræðu hér í kvöld, mun hann hafa verið farinn að finna dálitla sektarmeðvitund út af till. í fjárl. um Búnaðarfél. Mátti segja, að ræða hv. þm. Mýr. væri um 2 klst. óslitin röksemd fyrir því, að Búnaðarfél. hafi starfað á þeim bezta og réttasta grundvelli, sem hægt var að finna, einmitt á þeim tíma, sem talað er um, að glundroðinn í félaginu hafi verið mestur. Var þetta keyrt saman með þeim sterkustu rökum, sem hægt var að finna. En þegar botninn kom, var hann fúinn og götóttur, og hygg ég, að hann hafi ekki verið heimaunninn, heldur lánaður frá hv. þm. S.-Þ. En hvort rétti botninn er uppi í Borgarfirði eða þm. sitja á honum hér í d. meðan verið er að ganga frá þessu máli, skal ég láta ósagt.

Það var sérstaklega eftirtektarvert í seinni hlutanum af ræðu hv. þm. Mýr., að hann heldur því fram, að það sé lífsnauðsyn að gera alla starfsmenn Búnaðarfél. óánægða, til þess að lækna það, sem ábótavant er. En því ekki að ráða strax bót á því, sem ábótavant er, þegar allir eru sammála um, að þetta mikla ósamkomulag geri félagið óstarfhæft. Og það eina, sem þarf að gera, er að veita Búnaðarfél. vald til þess að kjósa sína eigin stjórn.

Það er ekki langt síðan því var haldið fram af hv. þm. S.-Þ., að Búnaðarfél. ætti heimtingu á að fá þá leiðréttingu sinna mála. En þegar ekki heppnaðist að smeygja handjárnunum á Sigurð Sigurðsson búnaðarmálastjóra, þurfti að snúa við blaðinu. Hvernig stendur á, að ekki er afgr. frv., sem nú liggur fyrir Ed., um að veita Búnaðarfél. þessi réttindi? Er setið á því eins og botninum í smíðið hjá hv. þm. Mýr.? Mál þetta hefði áreiðanlega verið afgr., ef stj.flokkarnir hefðu léð því fylgi. En það er víst einhver brotalöm á fylgi stj.flokkanna við þetta mál.

Hv. þm. Mýr. heldur því fram, að nauðsynlegt sé að koma þessu í það ástand, að allir verði óánægðir. Það verður skorið úr því, hvernig skipulag Búnaðarfél. eigi að vera. Hvernig er nú hægt að hugsa sér, að hv. þing geti komið endanlegri skipun á þetta mál? Það er um tvær leiðir að ræða: að splundra félaginu, eða að veita því fullkomið vald yfir málum sínum.

Þeir, sem eru í minni hl., verða að halda áfram að reyna að hafa þau áhrif á hv. Alþ., að þessi stefna þeirra verði ofan á. Verði sú stefna ofan á, að félaginu verði splundrað, þá munu bændur landsins fylkja sér um það að fá leiðréttingu á þessu ranglæti frá hv. Alþ. Hv. þm. S.-Þ. er heldur ekki rólegur, ef Búnaðarfél. fær fullt vald yfir sínum málum. Það verður ekki skorið úr þessu fyrir framtíðina, þótt ríkisstj. kunni að leggja eitthvað til þessara mála.

Hv. þm. Mýr. hélt því fram, að hér væri engu valdi fyrir að fara, því að það hefði aldrei verið neitt. En ef tekið hefir verið af því það vald, sem gert var 1923, hvers vegna má þá ekki vinna að því, eins og undanfarin þing, að Búnaðarfél. fái þetta vald aftur? Ég vona, að hv. þm. fari ekki að hvika frá þeirri stefnu, sem hann hefir fylgt undanfarin þing, að Búnaðarfél. fái þessi völd í sínar hendur.

Það skaut upp kollinum í síðustu ræðu hv. þm., að það sem aðallega spornaði við því, að hann gæti staðið eins hreinn í þessu máli eins og undanfarið, var það, að fulltrúarnir, sem þingið skipaði í stjórn Búnaðarfél. voru úr öðrum flokki en stj.flokkunum. M. ö. o., ef fulltrúarnir hefðu verið úr stjórnarfl., þá væri ekkert á móti því að veita Búnaðarfél. strax þetta sjálfsagða vald yfir málefnum sínum. Þetta er hans skoðun. Hv. þm. tók það fram út af brtt., sem við flytjum við brtt. hv. meiri hl. fjvn., og við frv. sjálft, að hann kynni betur við báðar þessar brtt. heldur en brtt. hv. meiri hl. n., en þó ætlar hann ekki að greiða þeim atkv., heldur með einhverri annari. Hvers vegna?

Hæstv. forsrh. vildi draga úr sínum fyrri ummælum um Búnaðarfél., m. a. það, sem hann hafði áður sagt, að félagið væri óstarfhæft. Þetta sagðist hann aldrei hafa sagt. Það er gott, ef hann hefir ekkert meint með þessum orðum sínum. Hitt getur hann ekki tekið aftur, að hann sagði þetta.

Ég heyrði ekki ræðu, sem hv. 9. landsk. flutti hér, en mér hefir verið sagt, að hann hafi ráðizt sérstaklega á einn starfsmann Búnaðarfél. Hann talaði m. a. um það, að það væri sýnilegt, hve lítið hann hefði haft að gera, þar sem hann hefði tekið að sér gjaldkerastörf hjá Búnaðarfél. Ég mun ekki verja einstaka starfsmenn félagsins á þeim grundvelli að lasta aðra, en þó vil ég benda á það, að ég tel það ekkert last, þótt starfsmenn Búnaðarfél., sem stjórnarfl. hefðu ekki viljað niðra í neinu, hefðu tekið að sér störf utan félagsins. Viðvíkjandi störfum þessa manns við Búnaðarfél. skal ég taka það fram, að fyrir það verk, sem hann vann að þeirri bók, sem Búnaðarfél. gaf út, fékk hann engin ritlaun. En hinir, sem skrifuðu svipuð rit fyrir félagið, fengu ritlaun, sem nema 100 hr. á örk. Eftir sama taxta hefði þessi maður átt að fá um 3000 kr. fyrir sitt rit. Ég tel ekki ástæðulaust að meta þetta starf hans að nokkru. Þetta sýnir aðeins, hve óréttlát sú árás er, sem gerð er á einstaka starfsmenn Búnaðarfél. Ég skal taka það fram, að það mun engan undra, þótt slíkar ásakanir í garð Búnaðarfél. komi frá þessum erkifjanda bændanna, því að þekking hans í þessu efni mun vera í samræmi við þá hugmynd, sem hv. þm. Mýr. drap á í sinni ræðu, að hann heldur, að nautin verpi eggjum.

Skal ég nú snúa mér að hv. frsm. meiri hl. n. Hann hélt því fram, að við hv. 2. landsk. vildum fara sömu leið og hv. meiri hl., með því að stuðla að takmörkun búnaðarþinganna. Þetta er mesti misskilningur. Brtt. hv. 2. landsk. fer í þá átt, að ríkisstj. geti bundið styrkveitingu til félagsins því skilyrði, að ráðning búnaðarmálastjóra sé staðfest af búnaðarþingi, enda sé hann ekki nema einn. Mína brtt. hefi ég sniðið eftir till. hv. meiri hl. n. og tekið það í hana, sem áður hefir staðið í fjárl., að áætlunin skuli vera samþ. af ráðh. Ég geri þetta ekki fyrir það, að ég telji þetta óhjákvæmilega nauðsyn, en ég vildi hafa þetta atriði með í till., til þess að hv. frsm. gæti ekki haldið því fram, að þessa till. væri ekki hægt að samþ., sökum þess að þessu ákvæði væri sleppt. Hann segir, að það sé misskilningur, að búnaðarþing eigi að samþ. búnaðarmálastjóra, heldur sé það ráðh., því að með því sé aðeins tryggt, að meðan það skipulag fáist ekki, muni Búnaðarfél. óska eftir því að fá sjálft að ráða stjórn sína. Þá er tryggara, að búnaðarmálastjóri sé ráðinn í samræmi við búnaðarþing og stj. Búnaðarfél. Þeir eiga mest undir þessu, og aðrir ekki. Ég mun verða með hverri till., sem lengst gengur í þessu efni. Ég tel, að till. minni hl. n. geri það, þar sem styrkurinn er veittur Búnaðarfél. alveg skilyrðislaust. Næstlengst gengur till. hv. 2. landsk.

Sem þrautatilraun til þess að snúa stjórnarliðinu af villu síns vegar mun ég fylgja þeirri till., sem ég hefi borið fram. Hún er sniðin eingöngu með tilliti til þess að komast eins nálægt þessu og mögulegt er, án þess að skerða rétt Búnaðarfél. í verulegum atriðum. Það er rangt hjá hv. frsm., að Sig. Sig. búnaðarmálastjóri eigi við sömu aðstöðu að búa gagnvart hæstv. stj. og t. d. vega- og vitamálastjóri, ef hann haldi áfram að vera búnaðarmálastj. Aðeins hvað áhrærir nokkurn hluta af störfum hans, er hann líkt settur og þessir menn. Allt meginstarf hans og starfsmannanna á að vera háð búnaðarþingunum, og hann verður þess vegna að standa þeim reikningsskil gerða sinna. Þær 200 þús. kr., sem Búnaðarfél. hefir fengið, hafa verið í höndum búnaðarþinganna. Stj. er því aðeins framkvæmdarvald fyrir þingin, og ekkert annað.

Hv. þm. heldur því fram, að ég hafi ekki trú á því, að unnt sé að ná þessu marki, nema með því að beita þvingunarráðstöfunum. Þetta er ekki rétt. Ég er viss um, að ef hv. þing skilur skyldu sína gagnvart Búnaðarfél. og samþ. að veita búnaðarþingunum vald til þess að velja sína eigin stj., kemur þetta af sjálfu sér. Núv. stj. Búnaðarfél. ætlar sér að skipa einn búnaðarmálastjóra. Ég er viss um, að sú skipun fær samþ. búnaðarþingsins. Að vísu fer því svo fjarri, að ég telji þetta nauðsynlegt til þess að ná þessu takmarki. Ég tel það meinleysu, til þess að fullnægja þessum mönnum, sem efast um, að hægt sé að koma þessu í það horf, sem sjálfsagt er.

Ég þarf ekki að deila um það við hv. þm., hvers vegna því ákvæði hefir ekki verið komið í framkvæmd, að hafa aðeins einn búnaðarmálastjóra. Ég er búinn að skýra það út. Að búnaðarmálastjórar voru hafðir tveir, var neyðarráðstöfun og stafaði af deilu þeirri, sem reis upp í félaginu. Þessi deila er nú horfin, og það er ástæðulaust að vekja hana upp aftur. Hv. þm. gerir það eingöngu til þess að geta haldið áfram árásum sínum á Búnaðarfél., en undir yfirskini þessarar fölsku ástæðu, sem nú er undir lok liðin. Hann vill vekja upp þennan gamla draug, til þess að geta riðið á honum inn í herbúðir Búnaðarfél. og sundrað þeim félagsskap.

Hv. þm. sagði, að sá eini maður, sem gæti talað gilt úr flokki um þetta, væri Sig. Sig. búnaðarmálastjóri. En hefir hv. þm. athugað, hvaða óskir Sig. Sig. hefir í þessu efni? Ætli þær falli saman við hans óskir? Nei. Hann hefir lýst því, hvernig þróunin hefir orðið í búnaðarfélagsskap okkar. Þessi þróun heldur áfram, en á þessu stigi er ekki hægt að gera ráð fyrir, að skipulagið næði fullkomnari þroska. Sig. Sig. hefir haldið því fram, að búnaðarþingin ein eigi að ráða skipun búnaðarmálastjóra, og þó að hann hafi haldið því fram, að nokkur hluti af þeim verkefnum, sem búnaðarmálastjóri hefir með höndum, væru þannig, að hann þyrfti ekki að standa öðrum skil á því en ráðh., þá er samt engin ástæða til þess að halda því fram, að ríkisstj. eigi að hafa nokkurn íhlutunarrétt um skipun búnaðarmálastjóra.

Hv. þm. talaði um Reykjaskóla. Það er gaman að því, hvernig þessi maður getur alltaf dregið þennan skóla inn í ræður sínar. Hann virðist aldrei ætla að geta hætt að tala um þennan skóla, og samt var það hann, sem átti aðalsökina á því ósamkomulagi, sem komst á í skólanum. Að form. fyrir skólanefnd var ekki skipaður fyrr en eftir að núv. stj. tók við, var fyrir tilmæli frá mér um að láta þetta bíða. Mér datt í hug, að ef hv. þm. S.-Þ. kæmist í þá aðstöðu, að hafa völd í stj. eða áhrif á hana, mundi það bezt skólans vegna, að þeir sömu menn yrðu formenn, af því að ég er viss um, að hvaða form., sem skipaður hefði verið, þá hefðu þessir menn risið gegn skólanum. Ég vildi skólanum vel, og þess vegna vildi ég, að sá maður, sem skipaður yrði, hefði fullkomna samúð þeirra, sem með völd færu. Þegar það var borið undir mig, hver líklegur væri til þess að taka við forstöðu skólans, eftir að núv. stj. tók við, þá tilnefndi ég þann mann, sem skipaður var. Hv. þm. gerði sér mat úr því, að það gæti skeð, að hann ætti eftir að verða eftirmaður minn á þingi. Hann reyndi það síðastl. vor, en tókst það ekki. Ef hv. þm. S.-Þ. hefir löngun til þess að losa mig við þetta starf, þá legg ég til, að hann reyni við mig næst og felli mig frá kosningu, því að líklegt er, að hann gæti náð talsverðu fylgi, þar sem hann er form. síns flokks, en í S.-Þingeyjarsýslu er svo lítið að vinna, þar sem framboðið nægir, þótt þingmannsefnið komi ekki í kjördæmið fyrir kosningar.

Þá hefi ég hrakið stærstu öfgarnar og öfugmælin, sem fram komu hjá hv. þm. á móti búnaðarfélagsskapnum. Skal ég þá að lokum efna loforð mitt við hæstv. forsrh., um að lesa upp fáeinar línur úr því skjali, sem Sig. Sig. skrifaði og hann hefir sinn fróðleik úr. Þetta hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Í búnaðarsamböndunum eru öll búnaðarfélög landsins, og þar með allir jarðabótamenn lands vors, 5503 að tölu síðastl. ár.

Á búnaðarþingi sitja því fulltrúar allra hinna starfandi jarðyrkjumanna lands vors. Þessir fulltrúar eru valdir í hinum ýmsu héruðum landsins, og þekkja því glögglega til búnaðarástæðna um land allt, vita hvar skórinn kreppir að, hverjir möguleikar séu til umbóta og framkvæmda á ýmsum sviðum.

Um stjórn og starfsháttu Búnaðarfélagsins verður farið nokkrum orðum. Skipun búnaðarþings, sem fulltrúa hinnar íslenzku bændastéttar, verður vart deilt um, að vel sé fyrir komið, og þar geti gætt áhrifa þeirra, er fram koma um endurbætur á skipulagi og umbótum búnaðar vors. En svo er um framkvæmd allra þessara mála, hvernig er þeim fyrir komið?“

Hér er því lýst, að skipulagið á Búnaðarfél. er orðið eins fullkomið og búast má við. Það er því ástæðulaust að vera að elta félagið fyrir það, að það þurfi að bæta skipulag þess og bylta því öllu við. Ég gæti lesið upp ýmislegt svipað þessu, sem sýnir áhuga Sig. Sig. Það er rétt skilið, og það er rétt frásögn á því, hve miklu hefir verið áorkað með þessu skipulagi, sem þegar er fengið, og hver þroski hefir skapazt af þeim störfum, sem einstakir menn í landinu og félög í sambandinu hafa unnið á meðan verið var að koma félagsskapnum í það horf, sem hann er nú í.

Þetta læt ég duga. Að vísu er meira eftir, en fyrst þessi lognmolla hefir færzt yfir þingið, þá vil ég ekki verða til þess að rjúfa friðinn og stofna til óeirða. Gefist tækifæri til frekari umr., mun ég seinna taka aftur til máls.