13.12.1934
Efri deild: 60. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2306 í B-deild Alþingistíðinda. (3127)
148. mál, stimpilgjald
Magnús Guðmundsson:
Mér sýnist af þeim fjölda skrifl. brtt., sem hér koma fram, að málinu hafi eigi verið veitt nægileg athugun, eins og ég tók fram við 2. umr. — 3. og 4. brtt. hæstv. fjmrh. skil ég svo, að niður falli þessi undanþága fyrir einstakar stofnanir, sem reknar eru af ríki og bæjum, svo að kvittanir frá landssímanum t. d. verða þá stimplaðar. Það er náttúrlega ekkert við þessu að segja og sjálfsagt að hafa ákvæðin sem skýrust. Má kannske segja, að þetta sé eðlilegt „trick“ af einum fjmrh., og skal ég ekki dvelja við það. En satt að segja finnst mér hæstv. ráðh. vera orðinn nokkuð frekur í kröfum um tekjuaukana, enda þarf mikils með, sbr. brtt. meiri hl. fjvn. við fjárlfrv., sem væntanlega verða allar samþ. — Mér finnst þetta frv. heldur leiðinlegt, og ég er hræddur um, að það komi í ljós ýms óþægindi við framkvæmd l. Ég vil þó stuðla að því, að það verði sem bezt úr garði gert, og kem því með 2 fyrirspurnir til hæstv. ráðh. Það stendur í 1. gr. B. um kvittanir, að sama sé, hvort greiðsla hafi farið fram í peningum eða víxlum og ávísunum. Skilst mér, að þetta skuli teljast til kvittana og stimplast. En samkv. A-lið 1. gr. eiga víxlar og ávísanir að stimplast, svo að mér skilst, að samkv. þessu verði um tvístimplun að ræða, og finnst mér það miður sanngjarnt. — Þá stendur í 5. gr. B. 1, að undanþegnar skuli kvittanir fyrir úttekt úr sparisjóðsbók. Ég þekki ekki slíkar kvittanir. Bankinn fær aðeins skrifaða beiðni á miða. (Fjmrh.: Það er kvittunin!). Það er alls engin kvittun, því maður fær ekkert greitt gegn þeim miða nema skrifað sé í bókina af starfsmönnum bankans. Mér finnst koma hér fram hugsunarvilla, sem alls ekki á að koma fyrir. (Fjmrh.: Það er átt við úttektarmiðana. Bankinn notar þá sem sönnunargagn fyrir því, hver hafi tekið úr bókinni). Þetta eru alls ekki neinar kvittanir í venjulegum skilningi, heldur aðeins til að sýna, hver hafi tekið féð út. Ef það væri kvittun, ætti hún ekki að afhendast fyrirfram, enda fær maður enga útborgun gegn slíkri beiðni nema hafa bókina með. — Ég held, að það séu ýms atriði í frv., sem þörf væri á að taka til frekari athugunar.