13.12.1934
Efri deild: 60. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2306 í B-deild Alþingistíðinda. (3128)
148. mál, stimpilgjald
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Hv. 1. þm. Skagf. minntist á, að um tvístimplun gæti orðið að ræða samkv. B-lið 1. gr. Það fer nú eftir því, hvað kallað er tvístimplun, en ég held, að ekki sé ástæða til að gera neina undanþágu um þetta atriði. Um úttektarmiða úr sparisjóðsbókum er það að segja, að bankinn lítur á þessa miða sem kvittanir, og það er samkv. ósk frá Landsbankanum, að þeir voru taldir hér með, svo að það kæmi fram, að ekki væri skylt að stimpla þessa miða. Hitt er misskilningur, að það, sem ritað er í sparisjóðsbókina, sé nokkur kvittun, enda er það ritað af bankamönnunum sjálfum. Bankinn sjálfur lítur á úttektarmiðann sem kvittun, svo að hér er ekki um neina hugsunarvillu að ræða.