18.10.1934
Efri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2066 í B-deild Alþingistíðinda. (3176)
58. mál, Kreppulánasjóður
Thor Thors:
Hér liggja nú fyrir tvær sameiginlegar brtt. frá allshn., sem mér hefir verið falið að skýra frá með nokkrum orðum, og eru þær á þskj. 527. Sú fyrri varðar 22. gr. frv. og er í raun og veru fyrst og fremst orðabreyt., en í öðru lagi eru þrengd ákvæði frvgr. Hún fjallar um það, að ef ölvaður flugmaður, bifreiðarstjóri, skipstjóri eða stýrimaður í starfi sínu veldur slysum á öðrum mönnum, þá skuli það varða missi réttinda þeirra til þessara starfa. Sú takmörkun er nú sett inn í frv., að þennan réttindamissi skuli miða við þá ölvun í starfi þessara manna, er veldur slysum, en það var ekki gert áður. Það er því misskilningur hjá hæstv. forsrh., að hér sé um varhugaverða nýjung að ræða. Hér er aðeins að ræða um leiðréttingu á því, sem þegar var áður komið inn í frv., en svo aftur breyt. Ég get að mörgu leyti tekið undir það, sem hæstv. forsrh. sagði, að ákvæði um þetta efni eigi frekar að vera í l. um bifreiðaakstur. En ég vil bara benda hæstv. forsrh. á það, að í því frv., sem hann hefir lagt fyrir allshn., var einmitt sérstakt ákvæði um bifreiðarstjóra og ölvun þeirra í sambandi við bifreiðaakstur. Það er þess vegna á engan hátt n., sem komið hefir þessu inn í frv.
Ég skal fúslega viðurkenna, að það getur verið nokkurt óréttlæti í því að taka fastari tökum á einni stétt þjóðfélagsins heldur en öðrum. Ég vil t. d. benda hæstv. forsrh., sem verður nú að teljast aðalábyrgðarmaður þessa frv., þar sem hann hefir ráðið því, hver samdi það, á það, að í 25. gr. þess er tekin upp alveg ný og sérstök tegund refsinga, sem á einungis að bitna á sjómönnum. Þeir eiga að missa atvinnuréttindi sín um langan tíma, en menn annara stétta, sem sekir eru um samskonar brot, eru algerlega lausir við þessa tegund refsingar. Ég tel þetta óréttlátt og vil skora á hæstv. forsrh. að beita áhrifum sínum í Ed. til þess að lagfæring fáist á þessu.
Síðari brtt., sem allshn. ber fram, er þess efnis, að l. þessi skuli öðlast gildi 1. febr. næstk. Í frv. er ekkert ákvæði um það, hvenær l. skuli öðlust gildi. Færi svo, að engin sérstök ákvæði væru sett um þetta í l. þessum, þá mundi sú regla gilda um þau, að þau öðluðust gildi 12 vikum eftir tilkynningu í B-deild stjtíð. um birtingu þeirra. Það er nú orðin tízka, að í hverju frv. sé ákveðið, hvenær það öðlist gildi sem l., og viljum við, að í þessu tilfelli sé einnig svo ákveðið. Það hafa heyrzt raddir um, að l. þessi ættu að öðlast gildi um áramót. N. hefir ekki tekið undir það, meðfram vegna þess, að hæstv. fjmrh. upplýsti, að áfengisverzlun ríkisins hefði talið heppilegt, að nokkur frestur yrði á gildistöku þeirra, vegna birgða, sem áfengisverzlunin nú hefir.
Út af brtt. meiri hl. allshn. á þskj. 545 vil ég geta þess, að hv. 8. landsk. og ég höfum ekki getað gerzt meðflm. hennar. Hér er um það að ræða, að rétti lækna til áfengissölu skuli skipað með reglugerð. Í þessari brtt., sem samin er af landlækni, er sagt nákvæmlega fyrir um það í ýmsum atriðum, á hvern hátt þetta skuli ákveðið í reglugerðinni. Ég tel það alveg nægilegt, eins og nú er ákveðið í frv., að dómsmrh. sé falið að skipa þessum málum með reglugerð, án þess að lagaákvæði séu fyrir því, hvað í henni eigi að standa. Þetta mál hefir verið borið undir Læknafélag Rvíkur, og ýmsir meðlimir þess eru á móti því, að slík ákvæði sem þessi komist inn í l. Hinsvegar hefir þetta mál ekki verið nægilega rætt hjá þeim.
Ég býst við, að sanngjörn lausn þessa máls fáist miklu fremur með því, að ákveðið sé, að dómsmrh. ákveði þetta einn með reglugerð, því að hann mundi að sjálfsögðu leita álits landlæknis og lækna yfirleitt í þessu efni. Ég er ekkert hræddur um, ef þeir hafa tíma til að bera ráð sín saman, að þá fáist ekki góð lausn þessa máls.
Að öðru leyti skal ég ekki blanda mér inn í þessar umr. eða aðrar brtt., sem fram eru komnar við frv.