07.12.1934
Efri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2073 í B-deild Alþingistíðinda. (3186)
58. mál, Kreppulánasjóður
Frsm. (Pétur Magnússon) [óyfirl.]:
Þegar málið var til 1. umr. hér í d., gerði ég grein fyrir þörfinni á þessari löggjöf. Landbn., sem haft hefir málið til athugunar, varð sammála um að leggja til, að það væri látið ná fram að ganga. Þó hefir hv. 4. landsk. skrifað undir nál. með fyrirvara.
N. ber fram tvær brtt. við frv., báðar við 1. gr. Sú fyrri er í því fólgin, að landsstj. verði gefinn íhlutunarréttur um samninga þá, sem gerðir kunna að verða um ábyrgðir, svo að stj. Kreppulánasjóðs hafi samningana með höndum, en beri þá þó undir landsstj., áður en frá þeim er gengið. Þar sem gera má ráð fyrir, að fjárframlög til þessara hluta lendi að öllu leyti á ríkissjóði, þótti þetta nauðsynlegt.
Hin brtt. er þýðingarmeiri. Hún fer fram á, að fjárframlag úr Kreppulánasjóði hækki úr 100 þús. kr. upp í 250 þús. kr. Rannsókn hefir leitt í ljós, að ábyrgðir þær, sem einstakir menn eru í fyrir lántökum úr Kreppulánasjóði, nema meira en 1 millj. kr., auk hreppsábyrgða, sem hér eru ekki taldar með, en þær er þó heimilt að semja um, ef fé hrekkur til. Ef þetta væri hækkað upp í 250 þús. kr., mætti gera ráð fyrir, að greiðslur þær, sem hægt væri að inna af hendi, næmu 20—25% af ábyrgðarkröfunum. Er ekki vert að spá neinu um, hverjar líkur séu til, að samningar náist um þessar greiðslur, en ég tel ólíklegt, að lánstofnanir teldu sig ekki fullsæmdar, ef þær fengju 25% greiðslu upp í skuldina, svo að ekki yrði þörf á að ganga að ábyrgðarmönnunum. Legg ég því til f. h. meiri hl. n., að þetta verði samþ.