14.11.1934
Efri deild: 38. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2323 í B-deild Alþingistíðinda. (3200)

49. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Samgmn. hefir athugað frv. þetta á milli umr. og borið fram við það brtt. á þskj. 370, sem að mestu leyti eru til þess að setja brtt. þær, sem samþ. voru við 2. umr., í rétt samband við gildandi l. Þá hefir n. líka borið fram brtt. á þskj. 439, þar sem farið er fram á að stytta línuna frá Bugðustöðum að Neðri-Vífilsdal, svo að hún nái aðeins að Hlíð eða Seljalandi. Ástæðan fyrir þessari breyt. er sú, að landssímastjóri taldi þetta heppilegra, því að lína þessi, sem er 6 km., kemur aðeins 2 bæjum að notum.

Um brtt. einstakra þm. skal það tekið fram, að n. hefir átt tal um þær við landsímastjóra, og fellst hún á rökstuðning hans að því er þær snertir. Er þá fyrst brtt. á þskj. 375, a-liður: Lína frá Silfrastöðum um Flatatungu að Gilsbakka. N. mælir með því, að brtt. þessi verði samþ. Hún hefir athugað þessa leið, og telur alveg sjálfsagt, að línan frá Silfrastöðum verði lengd þetta.

Þá er b-liður þessarar brtt.: Lína frá Reynistað um Sæmundarhlíð að Sólheimum. Þessi lína segir landssímastjóri, að eigi að vera einkalína, og þá helzt 2 km. lengri en hér er farið fram á að hún verði, því að þá komist 10—12 bæir í símasamband, en með því að hafa hana 7 km. frá Reynistað, þá hafa ekki nema 2 bæir veruleg not af henni. Það er því sýnt, að það er miklu heppilegra að hafa þarna einkasíma, enda þótt kostnaður við byggingu þeirrar línu yrði ef til vill 4000—5000 kr. N. leggur því á móti þessari till. Aftur á móti leggur landssímastjóri til, að c-liður brtt. þessarar verði samþ., en það er lína frá Sauðárkróki um Reykjaströnd að Reykjum. Hann segist hafa tekið línu þessa upp í till. sínar fyrir árin 1935—36, því að þarna sé afskekkt mjög og erfitt um samgöngur, en hinsvegar of strjálbyggt til þess að hafa þar einkalínu. N. mælir því með þessum lið brtt. — Um d-liðinn er hið sama að segja og b-liðinn. Með því að hafa þarna einkasíma myndu 8 bæir komast í símasamband, en aðeins 2—3 annars. N. leggur því á móti því, að brtt. þessi verði samþ.

Þá er brtt. á þskj. 376: Lína frá Tjaldanesi í Saurbæ að Staðarhóli. Hv. þm. Dal. tók aftur við 2. umr. till. um línu frá Tjaldanesi að Hvammsdal. Það er ekki búið ennþá að leggja línu að Tjaldanesi, en verður sennilega gert bráðum. Landssímastjóri telur sjálfsagt að hafa einkasíma þarna sakir þéttbýlis, því að það muni koma að beztum notum fyrir bændurna. Annars telur hann, að víða annarsstaðar sem leggja hafi orðið á móti nýjum línum, sé miklu meiri þörf fyrir síma heldur en þarna. Samgmn. fellst á þetta álit landssímastjóra og leggur því á móti brtt. þessari.

Þá er brtt. á þskj. 408,a, að aftan við orðin „Skjöldólfsstöðum í Jökuldal“ í 1. gr. l. nr. 38 l4. júní 1929 komi: Hliðarálma um Rangá að Heykollsstöðum. Þarna austur frá er langt á milli bæja og stór svæði, sem enginn sími er. Þannig er t. d. 30 km. frá Bót að Kirkjubæ, sem enginn sími er. Að leggja þessa álmu að Heykollsstöðum myndi stytta fyrir þá niður í Tungunni um 10 km. að ná í síma. Þetta telur landssímastjóri sanngjarnt, og leggur n. því til, að till. þessi verði samþykkt.

Þá er b-liður þessarar brtt.: Lína frá Egilsstöðum að Skeggjastöðum í Fellum. Þetta er framlenging á línunni að Birnufelli, sem nemur um 10 km. að vegalengd. Þarna er erfitt að ná í síma, og telur landssímastjóri þessa framlengingu línunnar því réttmæta, og fellst n. á það.

Þá er c-liður þessarar brtt.: Lína að Valþjófsstað. Hvaðan lína þessi eigi að koma, er ekki fastákveðið. En annaðhvort verður hún að koma frá Brekku eða Hallormsstað. Þannig stendur nfl. á, að nú ekki alls fyrir löngu vildi læknirinn á Brekku losna við símastöðina og fá einkasíma fyrir sig. Getur því verið, að það verði lögð ný lína á sömu staurum. Eins og kunnugt er, þá er fjölmenn byggð þarna, og telur landssímastjóri því, að þeir, sem búa þarna fram í dölunum, þurfi að fá einkasíma.

Brtt. á þskj. 420 er um línu frá Hemlu í Vestur-Landeyjum að Álfhólum í sömu sveit. Landssímastjóri segist áður hafa lagt til að lína þessi verði byggð. Leggur því n. til, að hún verði tekin upp.

Að síðustu vil ég taka það fram f. h. samgmn., að hún vill skora á atvmrh. að láta taka upp í kerfi símalínur þær, sem samþ. hafa verið síðan 1913, og skilgreina þær t. d. eftir landsfjórðungum. Landssímastjóri telur þetta ekki mikið verk, og kveðst mundu geta látið skrifstofu sína gera það. Þetta er hreint og beint nauðsynjaverk, því að sumar línurnar, sem teknar eru upp í l. frá 1919, eru t. d. felldar niður aftur með l. frá 1929, eða þá að þeim er breytt, Hér er því um þann hreinasta rugling að ræða, sem illt er að átta sig á. N. vill því vænta þess, að hæstv. atvmrh. hlutist til um að fella þetta allt í eina samfellda löggjöf, sem tilbúin verði fyrir næsta þing.