07.12.1934
Efri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2082 í B-deild Alþingistíðinda. (3205)
58. mál, Kreppulánasjóður
Frsm. (Pétur Magnússon):
Í þessu dæmi geng ég út frá því, að Kreppulánasjóður greiði 4000 kr. En ég tel líka alveg víst, að ábyrgðarmaðurinn gengi glaður að því að taka á sig nokkurn hluta ábyrgðarinnar, enda er ætlazt til þess í frv., ef svo stendur á. En langsamlega mestur hluti ábyrgðarmannanna getur ekkert tekið á sig. Hér er gert ráð fyrir samningi og samkomulagi í hverju tilfelli. Fyrirfram er ekki hægt að vita nákvæmlega, hvað hægt er að hafa upp úr hverjum einstökum ábyrgðarmanni. Fulltrúar Kreppulánasjóðs og ábyrgðarmennirnir verða í hverju einstöku tilfelli að semja við ábyrgðareigendur um eftirgjöf á lánunum.