25.10.1934
Neðri deild: 19. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2098 í B-deild Alþingistíðinda. (3233)

77. mál, áfengislög

Dómsmrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Ég vil byrja á því að svara hv. þm. Borgf. því, sem hann lét síðast falla orð um í ræðu sinni. Hann sagði, að ég hefði haft ákaflega góð orð um að gera eins og ég get til að þjóðin hljóti sem minnst tjón af áfenginu, og það skal ég gera. (PO: Sagði ég ekki í sambandi við fjárlögin?). En ég ætla að segja það í fullkominni alvöru, að ég hefi gert alveg eins mikið og þessi hv. þm. í þeim efnum. Ég hefi gert eftir getu, og ég hefi allra manna mesta reynslu í þessum málum, er snertir áfengislögin, eins og ég hefi áður tekið fram, því enginn hefir fjallað meira um þau á síðustu árum en ég. Viðvíkjandi fjárlfrv. er það að segja, að það var samið áður en þetta frv. var fram borið, með tilliti til þess, sem áður var. Ég skal geta þess, að ekki var samið um, hvort leggja skyldi eitthvað af sektum í sérstakan sjóð til afnota fyrir stórstúkuna, og fjárlögin voru samþ. eingöngu með tilliti til ríkjandi ástands. Þeir góðtemplarar vildu greiða ákveðinn vissan hluta teknanna í sjóð, eins og ég tók fram, en því er ég persónulega mótfallinn, að tekinn sé sérstakur hluti tekna ríkissjóðs og myndaður sérstakur sjóður. Ef þetta frv. verður samþ., skal ég standa við mín orð að fylgja auknu framlagi til bindindisstarfsins vegna breyttra aðstæðna.

Ég vil ekki ganga inn á, að ekki hafi verið góður undirbúningur á þessu frv. Ég skal aðeins benda á það, án þess ég vilji teygja lengi umr., að við öfluðum gagna úr öllum nágrannaríkjum, og þó sérstaklega frá Noregi, þar sem reynsla er komin á um slíka löggjöf, því þeir hafa afnumið bannlög hjá sér. Í öllum atriðum í þessum lögum — og það ætti hv. þm. Borgf. að vera þakklátur fyrir — er gengið lengra en í norsku lögunum, t. d. að gefa bæjunum leyfi að ákveða sjálfir um sölu, þó reynslan í Noregi hafi ekki gefizt vel, og þeir séu hættir við þessa aðferð. En við tókum þetta upp, án þess ég hafi sérstaka trú á því, — af því atkvæðagreiðslan var mjög misjöfn. Ég sé ekki sérstaka ástæðu til að deila um þátttöku stórstúkunnar í undirbúningi þessa frv. Þegar ég skipa 3 menn í nefnd, þá skipa ég auðvitað ekki 1 sem ráðgefandi. Þeir eru allir skipaðir jafnréttháir og þeir bera allir jafna ábyrgð á frv. Það skiptir ekki máli í þessu sambandi, hvort öll nefndin hefir verið kölluð á fundi eða hvernig samstarfið hefir farið úr hendi. Um það get ég heldur ekkert sagt.

Um 2. gr. frv. er ekki ástæða til að ræða sérstakl., þó þar sé gert ráð fyrir undanþágu um innlent áfengt öl. Annars skal ég segja alveg blátt áfram sem mína skoðun, að mér finnst lítill munur á því, hvort áfengið er búið til hér á landi eða flutt inn, þegar búið er að leyfa sölu þess. Þessi gr. skiptir litlu máli; hún gefur engar upplýsingar um, hvort Alþingi muni síðar ákveða eitthvað í þessu máli.

Þá er að minnast á 10. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir, að ráðh. sé heimilt að gefa vínveitingaleyfi. Þetta er að vísu ekki greinilega orðað, en gengið að sjálfsögðu út frá því, að þurfi leyfi viðkomandi bæjarfélags. Það getur vel verið, að þetta sé ekki nægilega vel orðað, en það er enginn vafi á því, að samkv. venju í lögum má álykta þarna frá meira til minna og minna til meira, eins og oft er gert. Hv. þm. Borgf. hefir skilið sem svo, að með útsölustaði væri átt við búðir, þó að deila megi um, hvort ekki má skilja útsölu sem alla sölu. Ég tel, að þegar á að leyfa veitingar, sé verið að ganga lengra en að leyfa útsölu, og til þess þarf leyfi bæjarbúa, og því miklu fremur um veitingastofu. það er því tvímælalaust rétt, að það þarf samskonar leyfi bæjarbúa fyrir veitingastofu og útsölu, en það má orða þetta um, svo ekki valdi misskilningi. (PO: Ég er hræddur um, að það sé vissara).

Þá minntist hann á húsrannsóknir, að hann teldi rétt, að lögreglumenn mættu framkvæma þær án sýslumannsúrskurðar. Ég held mig við það, að það hafi ekki komið að sök, þó þurft hafi að leita til lögreglustjóra. Hann benti á, að ekki væri meira að leita á heimilum en t. d. í bifreiðum. Ég verð að segja, að í því verðum við að vera miklu varkárari, og að á því er reginmunur ger í okkar löggjöf, að leita í bifreiðum, skipum eða öðrum flutningatækjum, eða raska heimilisfriðnum. Á því tvennu er stórmunur, og mér finnst ekki óeðlilegt að halda þeim takmörkunum. Hv. þm. minntist á, að það væri hart, ef heimilisfriðurinn væri notaður til lögbrota. Ég vil benda honum á, að það er engin löggjöf, sem heimilar lögregluþjóni að gera húsrannsókn t. d. fyrir þjófnað eða aðra glæpi, sem grunur leikur á um, að framdir séu í húsinu. Svo ríkur er heimilisfriðurinn í okkar löggjöf, og sé ég því enga ástæðu til, að öðruvísi sé í þessari löggjöf.

Viðvíkjandi einstaka atriði skal ég viðurkenna, að þau þarf að taka til rækilegrar athugunar, og það er sjálfsagt að taka allar góðar bendingar til greina. Ég endurtek enn einu sinni, að ég tel ekki frv. „absolut“ það rétta í málinu. Hv. þm. Borgf. var eitthvað að tala um, hverjir flyttu frv. Eins og þm. veit, er það borið fram af skyldu. Það er ekki stjórnarfrv. og ekki borið fram of minni hendi; það er eingöngu fram komið vegna þál., sem samþ. var á síðasta þingi. Þetta var því skylda stj., sem hún gat ekki brugðizt. Ég bað engan þm. að flytja frv. Ég lét prenta það sem handrit, og lagði fyrir allshn., en út af fyrir sig var mér sama, hvort hún flutti það eða ekki.