13.11.1934
Neðri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2105 í B-deild Alþingistíðinda. (3241)

77. mál, áfengislög

Páll Þorbjarnarson:

Á þskj. 411 er brtt. við 23. gr. frv. til áfengisl., sem fer í þá átt, að aftan við 23. gr. bætist svo hljóðandi gr.:

„Verði slys af völdum ölvaðs flugmanns, bifreiðarstjóra, skipstjóra eða stýrimanns á öðrum mönnum, skal það jafnan varða missi flug-, öku-, skipstjóra- eða stýrimannsskírteinis fyrir fullt og allt.“

Mér fannst rétt að taka nokkuð fleiri menn undir þetta ákvæði, sem líkt stendur á um og þá, sem um getur í brtt. á þskj. 276, tölulið 9, og þess vegna hefi ég komið fram með þessa brtt. á þskj. 411, sem tekur einnig skipstjóra og stýrimenn undir þetta ákvæði.

Þau dæmi, að bifreiðastjórar og flugmenn valdi slíkum slysum á mönnum, munu einnig vera til hliðstæð um þessa menn, og er því ástæða til þeirrar breyt., að þessir menn verði teknir undir sömu lög.