13.11.1934
Neðri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2107 í B-deild Alþingistíðinda. (3243)
77. mál, áfengislög
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Það eru nú komnar fram brtt. á þskj. 276, sem miða að því að bæta úr verstu agnúunum, sem ég drap á við 1. umr. að væri á frv., a. m. k. frá sjónarmiði bindindismanna. Ég skal taka það fram viðvíkjandi sumum þeim brtt., er liggja hér fyrir, að þó að þær stefni að því sama marki, sem ég taldi æskilegt, þá er það með öðrum hætti en ég taldi æskilegt. Sérstaklega á ég þar við brtt. við 10. gr., þar sem gert er ráð fyrir að ákveða með löggjöf, að útsölustaðir séu eigi settir nema þar, sem þeir eru nú. Það er vitanlega nauðsyn að reisa hér við rammar skorður, en ég taldi réttara að fara þá leið, að takmarkanirnar kæmu frá þeim mönnum, er búa á hverjum stað. Að þessu leyti var ég samþykkur þeim ákvæðum frv., er að þessu lúta, svo langt sem þau náðu. Ég taldi það rétt, að allir kosningabærir menn á útsölustöðunum fengju færi á að ákveða, hvort sterka drykki skyldi selja þar. Ég gat því sætt mig við þau ákvæði frv., er lutu að útsölustöðunum. Ég vil gera fólkið ábyrgt fyrir því, hvort útsölu skuli leyfa, og þá um leið ábyrgt fyrir afleiðingunum. Því hefir verið haldið fram, að takmarkanir í þessu efni leiddu af sér leynisölu, og skal ég játa, að nokkuð kann að vera til í því. En það leiðir engan veginn af sér, að eigi megi setja ákvæði til þess að hamla upp á móti hættunni, en slík ákvæði skortir enn bæði í frv. og brtt. Ég mun síðar minnast á það, er til verndar gæti orðið í þessu efni.
Ég álít þá leið, er farin er í frv. viðvíkjandi nýjum útsölustöðum, heppilegri en þá, að banna þá með lögum. Ég er viss um það, að með þeim meiri hl., sem frv. krefst — 3/5 hlutar greiddra atkvæða, til þess að útsala sé leyfð — verður það bannað í flestum tilfellum. Þar, sem útsala yrði leyfð, bera þeir menn um leið ábyrgðina, og sýna þá fremur viðleitni í þá átt að sporna við illum afleiðingum þessarar ráðstöfunar.
Með þessum brtt., er liggja hér fyrir, er bætt úr einum stærsta ágallanum, sem var á frv. eins og það kom frá n. og hæstv. stjórn, og á ég þar við ákvæðin í 12. gr. frv., þar sem engar hömlur voru settar við vínveitingaleyfi til veitingahúsa í kaupstöðum. Aftur á móti eru í brtt. reistar rammar skorður við þessu, þar sem ráðh. er aðeins veitt heimild til að leyfa einu veitingahúsi í Rvík veitingaleyfi á áfengum drykkjum, sem til landsins er heimilt að flytja. Enda má það ekki ná lengra en þetta. Því að svo skaðlegar sem útsölur vínanna yrðu sjálfar á þeim stöðum, sem þær væru leyfðar, þá mundu ótal veitingaleiðir liggja út frá þeim, víðsvegar um landið, og skapa þeim mönnum óteljandi möguleika, sem vilja svala drykkjufýsninni og fá óskir sínar uppfylltar í þeim efnum. Þá eru ennfremur teknar upp í brtt. við 13. gr. frv. frekari varnir gegn þessu, þar sem svo er ákveðið, að ráðh. skuli í reglugerð setja fyrirmæli um ýms framkvæmdaatriði um útsölu og veitingu vína, og reisa því á þann hátt rammari skorður. Í frv. er þetta að mestu leyti lagt í vald ráðh., hversu langt eða skammt skuli farið í þessu efni. En samkv. brtt. er aftur á móti ákveðið, hvaða takmarkanir ráðh. skuli skylt að setja í reglugerð. Þær stefna yfirleitt allar að því að draga sem mest úr vínnautninni og reisa skorður við þeim nýja vínstraum, sem nú á að veita inn í landið og flestir munu sammála um, að hefir alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Ég býst við, að það myndi veita þjóðinni enn meira öryggi, ef tekin væru inn í frv. fleiri slík ákvæði, sem ráðherra væri skylt að setja í reglugerð, því að allt stefnir það í rétta átt, sem ákveðið er í brtt. En hvað c-lið brtt. snertir, þar sem tiltekið er, að sölulaun áfengis í útsölum og á veitingastað megi aldrei fara fram. úr ákveðnu hundraðsgjaldi, þá álít ég fulla ástæðu til að ákveða í þeim lið hámarksálagningu, sem sett verði að skilyrði fyrir veitingaleyfi, og að veitingahúsin skuli bundin við að fylgja því.
Mér er sagt, að það veitingahús hér í Rvík, sem hefir vínveitingaleyfi, hafi fengið 33% afslátt á verði þeirra vína, sem það hefir til útsölu, og verð ég að telja það allt of langt gengið, að geta svo há sölulaun og hvetja það á þann hátt til að selja sem mest af víni. Þar sem af andvirði vína frá áfengisverzlun ríkisins fellur í skaut þeirra, sem hafa útsöluleyfi, þá tel ég, að með því sé óþarflega mikið dregið frá tekjum ríkissjóðs af víninu og auk þess ýtt óhæfilega mikið á eftir útsölumönnum að selja sem mest af vínum. Ég álít, að það megi í lögum ákveða hámarksálagningu á heildsöluverð vína á útsölustöðum, sem þó væri hvergi eins hátt og viðgengizt hefir hér undanfarið, enda alveg þarflaust að skerða svo mjög tekjur ríkissjóðs af víninu, svo illt og bölvað sem það er, að ríkið hafi vínsölu að tekjugrein. Hér er um að ræða alveg áhættulaus viðskipti fyrir útsölumenn vínanna, þar sem afhending á þeim fer fram gegn staðgreiðslu út í hönd. Ég mun við 3. umr. flytja brtt. við þennan lið, sem ákveður hámark sölulauna til þeirra, sem hafa á hendi útsölu áfengis fyrir ríkissjóð.
Þá skal ég minnast á það, sem ég raunar drap á við 1. umr. málsins og engin brtt. hefir enn komið fram um, en það er, að löggæzlumönnum og hreppstjórum, sem eiga að hafa á hendi eftirlitið með framkvæmd þessara laga, sé veitt viðtækara vald en gert er í frv. til að gera hússannsóknir, þar sem grunur leikur á um tilbúning og bruggun óleyfilegs áfengis. Ég deildi þá allmikið um þetta við hæstv. dómsmrh., og virtist mér engin gild rök koma fram frá honum gegn því, að löggæzlumönnum væri fengið víðtækara vald í þessu efni. Ég hélt því fram, að það væri ekki fær leið fyrir löggæzlumenn að koma upp um brot á áfengislögunum, ef þeir þyrftu um langan veg að sækja til hlutaðeigandi lögreglustjóra. Og engin rök hafa komið fram gegn því, að þessir menn fái að hafa fullkomið rannsóknarvald. Enda mun það sannast, að ekki verður síður ástæða til að eiga í höggi við heimabruggið og launsöluna eftir en áður, að slík lög, sem hér liggja fyrir, eru gengin í gildi. Reynslan mun leiða það í ljós, að baráttan við bruggarana verður mun erfiðari en áður. Og allar vonir andbanninga um, að með innflutningi og sölu sterkra drykkja verði auðveldara að uppræta bruggarana, munu fyrirsjáanlega gersamlega bregðast. Þess vegna mega þær ekki hamla löggjafarvaldinu frá að lögfesta hinar fullkomnustu öryggisráðstafanir til þess að halda áfram og styrkja baráttuna gegn bruggurunum.
Þá vil ég ennfremur benda á, að það vantar alveg inn í frv. ákvæði um, að haft sé eftirlit með vöruflutningum hinna ýmsu farartækja í landinu. Því hefir verið haldið fram, að því færri sem útsölustaðir vínanna væru, því meiri freisting væri fyrir menn að flytja vínið um langan veg og milli héraða, enda myndi það „reiða fyrir launsölum. En þar sem allir virðast sammála um, að rétt sé að hafa ströng ákvæði um útsölu vínsins, þá vona ég, að einhver af hv. þdm. flytji brtt. við frv. um þetta efni. Í umr. um þetta frv. hér í þd. virðist engin rödd koma fram um að útsölu vína sé dreift sem víðast um landið, þó að það heyrist ótæpt í ræðum sumra manna utanþings, í útvarpinu og víðar. Af því mætti draga þá ályktun, að allir hv. þdm. vilji vera þátttakendur í því að reisa öflugar hömlur gegn launsölum vína í landinu. Og eitt fyrsta atriðið, sem þá kemur til greina, er, að haft sé strangt eftirlit með því, að vín verði ekki flutt óleyfilega í bílum út um land. Skortir mjög á, að í frv. séu gerðar nauðsynlegar ráðstafanir í þessu efni. Að vísu er svo um mælt í 17. gr. frv., að sérstakir löggæzlumenn og hreppstjórar hafi vald til að rannsaka flutningatæki, þar á meðal bifreiðar og vagna. Þetta er að vísu gott, það sem það nær. En hér þarf frekari aðgerða við. Það verður beinlínis að stemma stigu fyrir því með reglugerðarákvæði, að vín verði flutt með bifreiðum, nema frá áfengisverzluninni til útsölustaðanna. Enda skulu þær vínsendingar vera í tryggum umbúðum og innsiglaðar með merki áfengisverzlunarinnar. Ákvæði um þetta vantar í frv. og þær brtt., sem fyrir liggja frá hv. minni hl. allshn., og verður því að koma því inn í lögin við 3. umr. Það verður einnig að athuga fleiri möguleika til að sporna við því, að launsölustaðir áfengis verði reistir úti um land.
Kem ég þá að öðru atriði, sem ekki eru reistar skorður við í frv., en það er, að skikkanlegir borgarar verði fyrir óþægindum og áreitni af ölvuðum mönnum, sem þeir eru máske neyddir til að ferðast með í bifreiðum eða öðrum farartækjum. Getur það oft valdið leiðindum og jafnvel slysum, ef mikið ölvaðir menn fá að ferðast í bifreiðum og verða bifreiðarstjórum til trafala, án þess að nokkur ráðstöfun sé gerð til þess að losa samferðafólkið við þá. Í frv. er engin ákvörðun um slíkt, en það verður að búa svo um, að ölvaðir menn geti ekki fengið far með öðru fólki í bifreiðum eða valdið þar óþægindum; því fremur sem það er eina öryggisráðstöfunin gegn því, að bifreiðarstjórum stafi hætta af þeim við sitt ábyrgðarmikla starf.
Það hefir mikið verið rætt um refsiákvæði gegn því, ef bílstjórar og þeir, sem stýra flugvélum, yrðu vegna ölvunar valdir að slysum og tjóni fyrir farþega, sem með þeim ferðast. Ég skal játa, að orðalag á brtt. hv. minni hl. allshn. um það atriði er sízt til bóta, og felli ég mig raunar betur við orðalag frvgr. um það efni. Það er vitanlega engu síður nauðsynlegt að lögfesta refsiákvæði gegn því, að ölvaðir menn stýri skipum og flugvélum, enda mun nú þegar vera fram komin brtt. um það frá hv. 3. landsk., að ég ætla.
Ég hygg það hafi verið hv. 8. landsk., sem talaði fyrir hönd þess hluta hv. allshn., sem ekki flytur neinar brtt. við frv. og virðist sætta sig við, að það verði samþ. óbreytt. Hann minntist á þá brtt. hv. minni hl., sem gerir ráð fyrir því, að 2. gr. verði felld úr, frv. — Ég tók það skýrt fram við 1. umr. málsins, að þessi grein ætti alls ekki heima í frv., hvernig sem á málið væri litið. Það felst í henni nokkurskonar fyrirheit til þeirra manna, sem hafa áhuga á því að brugga áfengt öl hér á landi. Ég vil ekki gefa þeim neitt fyrirheit um það, og hvað sem um það mál má segja að öðru leyti, þá á þessi grein að falla úr frv. Það er sjálfsagt ekki meining þeirra, sem standa að þessu frv., að jafnframt því, sem leyft er að flytja sterka drykki inn í landið, skuli banna að flytja inn áfengt öl. Og þá er vitanlega engin ástæða til að brugga áfengt öl í landinu. Annars vil ég í þessu sambandi benda á, að reynslan hefir leitt það í ljós, bæði hér á landi og annarsstaðar, þegar völ hefir verið bæði á áfengu öli og sterkum drykkjum, að leiðin til vínhneigðar og drykkjuskaparóreglu var sú, að unglingarnir byrjuðu á að drekka áfengt öl, og komust þannig í kynni við ölvunaráhrif vínsins. Svo leiddust þeir stig af stigi. Leiddist að bíða eftir áhrifum af öldrykkjunni, vildu njóta þeirra sem fyrst, og fóru þá að drekka sterku drykkina. En áfenga ölið vakti hjá þeim drykkjufýsnina. Með hliðsjón af þessari reynslu hafa bindindismenn hér á landi og annarsstaðar beitt sér á móti því, að áfengt öl yrði leyft til drykkjar. Þess vegna er það síður en svo æskilegt að fá það í stríðum straumum um landið, enda þótt það verði ofan á að leyfa innflutning á sterkum drykkjum. Mörgum hrís hugur við þeim afleiðingum, sem stafa af bruggun áfengs öls í landinu og innflutningi þess; það er því fullkomin ástæða til að reisa skorður við því, en þær vantar algerlega í frv. — Ég álít það mikinn galla á frv., en vitanlega má úr því bæta. Og vil ég beina því til hv. 8. landsk., ef hann vill vera sjálfum sér samkvæmur og sporna við því, að ungling- ar tælist til drykkjuskapar, þá hlýtur hann að vera mótfallinn innflutningi á áfengu öli, því að það er hættulegast, fyrst og fremst fyrir unga fólkið, eins og ég hefi áður lýst. Þess vegna vænti ég þess fastlega, að hv. 8. landsk. rétti mér hönd sína til stuðnings í þessu efni. (GÞ: Ég er til með að flytja brtt. með hv. þm. í þá átt við 3. umr.). Ég þakka kærlega fyrir og mun þiggja stuðning hv. þm.
Í brtt. hv. minni hl. allshn. er gert ráð fyrir að setja nýjan kafla inn í frv., sem felur það í sér m. a., að ráðh. skipi sér til aðstoðar ráðunaut í áfengismálum, að fengnum till. frá þeim bindindisfélögum, sem njóta opinbers styrks. Í sambandi við þessa brtt. vil ég láta þá skoðun mína í ljós, að ég er síður en svo mótfallinn því, að skipaður verði ráðunautur til aðstoðar stj., ef hann er áhrifamaður á þessu sviði. Ég álít sjálfsagt að nefna þann aðila til þessa hlutverks, sem er fulltrúi þeirra bindindisfélaga, sem um ræðir í brtt., en það er vitanlega stórtemplar. Hann nýtur að sjálfsögðu hins mesta trausts hjá þeim einstaklingum og félögum, sem vinna á móti áfengisnautninni í landinu, og ætti hann því að veta sjálfkjörinn í þessa stöðu sem samverkamaður ríkisstj., ef Alþingi vill fallast á þessa ráðstöfun. Það er sú minnsta krafa, sem bindindismenn í landinu geta gert til löggjafans á Alþingi, að stórtemplar verði gerður að samstarfsmanni stj. á þessu sviði. Ég mun við 3. umr. flytja brtt. í þá átt, hvort sem þessi till. verður samþ. eða ekki.
Ég mun bera fram brtt. um það, að stórritara verði falið þetta starf, og að hann verði ráðunautur dómsmrh. í áfengismálum. Viðvíkjandi þeim n., sem gert er ráð fyrir í þessum sama kafla eftir brtt., að skipaðar verði í hreppum og kaupstöðum, þá má vera, að þær geti komið að nokkru gagni, en rétt er að athuga það einnig fyrir 3. umr., hvort ekki færi betur að tengja þetta eitthvað við bindindisstarfsemina, sem fyrir kann að vera á staðnum, þar sem til slíkrar nefndarskipunar kemur, og að þeim sé gefið nokkurt íhlutunarvald um það, hvaða menn veljast til starfans. Því að gagnið af starfi þessara n. fer eftir því, hvort mennirnir eru áhugasamir um málið og líklegir til að geta unnið því eitthvert gagn. Og um það eru engir bærari að dæma en þeir menn, sem standa í fararbroddi bindindisins á hverjum tíma, en það eru hinir félagsbundnu bindindismenn. Það er mín skoðun, að eftir að búið er að breyta áfengislöggjöfinni í það horf, sem gert er ráð fyrir í frv., þá sé það, sem fyrst og fremst verður að byggja á til varnar í vínflóðinu, hin félagslega starfsemi bindindismannanna í landinu. Er alveg sjálfsagt að búa þetta í hendur hennar frá löggjafans hálfu, þannig, að þessi starfsemi eigi stoð í lögunum til að vinna sitt verk, þjóðfélaginu til blessunar. Og að því miða þær brtt., sem hér eru komnar fram, og auk þess brtt. við eitt af þeim atriðum, sem ég hefi nú þegar minnzt á, og væntanlega koma fram við 3. umr. að svo stöddu skal ég ekki fara lengra út í þetta mál, en ég vænti þess, að við megum treysta því, að þegar það spor verður stigið að breyta áfengislöggjöfinni eins og hér er gert ráð fyrir, þá skerist þeir menn ekki úr leik, sem breyt. hafa knúð fram, með það, að setja nú skynsamleg og nauðsynleg höft á vínnautninu, og heldur ekki um það, að styrkja þá starfsemi, sem nú verður að taka til óspilltra málanna í þessu efni, en velti henni þann fjárhagslegan stuðning, sem nauðsynlegur er til þess að starfið geti borið árangur. Þeir geta verið vissir um, að á móti þeim styrk verður lagt fram svo mikið af starfi og kröftum, sem allt er byggt upp á óeigingjörnum grundvelli, að ekki hefir annað framlag sterkara komið á móti neinu því fjárframlagi, sem varið hefir verið úr ríkissjóði til nokkurs hlutar hér í okkar þjóðfélagi.