22.11.1934
Neðri deild: 43. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2135 í B-deild Alþingistíðinda. (3288)
77. mál, áfengislög
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Ég vil svara því, sem fram hefir komið í tilefni af aths. þeim, sem ég gerði við 1. brtt. á þskj. 521. Ég ætla að byrja með því að víkja nokkrum orðum að hv. 11. landsk. Hann gaf upplýsingar um það, hvernig það myndi verka að hafa álagningarákvæði. Viðvíkjandi því, sem ég sagði, að ef þessi till. yrði samþ., þá væri hætta á því, að verð sumra víntegunda yrði lágt, vil ég taka þetta fram:
Hv. þm. upplýsti það, að þá yrði 1 lítri af víni seldur á 14 kr. í útsölu. Væri sú aðferð viðhöfð, að keypt væri hreint vín, það væri blandað og búið til úr því brennivín, mætti komast að betri kjörum. Ef vínflaskan kostaði 14 kr., eins og hv. 11. landsk. telur, þá væri hæfilegt að blanda þannig, að á móti 1 af hreinu víni kæmi 2 af vatni. Það þykir gott vín. Sé þannig reiknað, má fá 4 fl. af brennivíni úr 1 lítra af hreinu víni. Útsöluverð ætti þá að vera kr. 3.50.
Sé aftur á móti reiknað með því, að brennivínið verði sterkara, þá verður útsöluverð kr. 4.66. Þetta sýnir, að það var rétt, sem ég sagði, að það væri of lágt verð á þessari tegund víns.
Það má vera, að verðið á „whisky“ og „koniaki“ þyki nógu hátt með þeim tölum, sem hv. þm. nefndi.
Hv. þm. sagði, að ég hefði ekki gert grein fyrir því, hver áhrif ýms tekjuaukafrv. hefðu á tekjur ríkissjóðs. Þetta er ekki rétt. Ég hefi nú upplýst, hvað þessi frv. gefa ríkissjóði. Það er ekki mín sök, þótt hv. sjálfst.menn hér á þingi troði upp í eyrun og vilji ekki hlusta á rök í þessu efni. Það eru viss frv., eins og t. d. stimpilgjaldsfrv., sem ómögulegt er að reikna út. Það getur enginn gert. Allt annað, sem hægt hefir verið að reikna út, hefi ég gefið upplýsingar um hér í þessari hv. deild.
Hv. þm. V.-Sk. talaði hér um það, hvort það ætti að selja vínin svo dýr, að bruggið héldi áfram, eða svo ódýr, að bruggið hætti. Það er ekki það, sem hér um ræðir viðvíkjandi þessari till., heldur það, hvort álagningin skuli takmörkuð, og hvort sú takmörkun sé ekki of mikil, þannig að álagningin geti ekki orðið svo mikil, að menn geti sætt sig við það. Enginn sættir sig við það, að vínið sé selt á kr. 3.50. Það er ekki rétt, að hægt sé að selja vínið svo ódýrt, að það geti keppt við bruggið.
Ég tók það fram, að ef ekki er haft mjög hátt verð á brennivíninu, þá minnkaði bruggið, sem selt er til kaupstaðanna.
Ég ætla ekki að fara út í langar umr. um það, hvort rétt sé að hafa slíkar hömlur á álagningu vara sem þessi till. fer fram á. Ég álít það ekki rétt. En ég gæti fallizt á einhverjar slíkar hömlur, ef hægt væri að hreyfa þetta til, eftir því sem reynslan sýndi, að þyrfti að gera. Verðlagning þessarar vöru er svo mikið vandamál, að ég hygg, að enginn okkar, sem hér erum inni, sé tilbúinn til þess að leysa úr því.
Það þarf að athuga verðlagið erlendis og reynslu annara þjóða í þessum efnum. Forstjóri Áfengisverzlunarinnar er nú erlendis til þess að kynna sér þessa reynslu. Ég held, að við ættum að koma okkur saman um að bíða eftir þeirri reynslu og heyra hana, áður en sett verða ákvæði í frv., sem gætu orðið til ills. Ef einhver hv. þm. hefir þá eitthvað sérstakt við þetta að athuga, þá getur hann borið það fram.
Ég get ekki fallizt á það núna, að slíkt álagningarákvæði sé haft í þessu frv., þótt ég sé því „principielt“ fylgjandi að hafa slík ákvæði.