22.11.1934
Neðri deild: 43. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2141 í B-deild Alþingistíðinda. (3296)
77. mál, áfengislög
Thor Thors:
Ég býst við, að allir geti verið sammála um það, að refsingar úr hófi fram geti komið til með að verka gagnstætt við það, sem ætlunin var. Það leiðir til þess, að menn af miskunnsemi kæra ekki sökudólgana. Slíkt verður ekki til þess að bæta réttarvörzluna, því að takmark hennar er, að hvert afbrot sé kært og refsingum komið fram samkvæmt ákvæðum l. Flestir munu sammála um, að refsiákvæði áfengislaganna nú séu nógu ströng, en þau hafa verið látin haldast í þessu frv., þótt kannske væri ástæða til þess að draga úr þeim við það, að eðli brotsins breytist. Áður fyrr voru þetta brot gegn því banni, er var á innflutningi sterkra vína; bönnuð vara var flutt inn, en nú verður þetta brot á tollalöggjöf og einkasölulöggjöf, eins og hv. forsrh. tók réttilega fram. Þótt ástæða hafi verið til þess að draga úr refsingunum, hefir það ekki verið gert. Í einu tilfelli er hinsvegar hert svo óheyrilega á refsingunum, að ég og aðrir þm. höfum komið með brtt. við það. Þetta er viðvíkjandi 25. gr. frv., þar sem ræðir um áfengisinnflutning til þess að selja eða veita fyrir borgun. Við þessu broti er í l. sett 5000 kr. sekt í fyrsta sinn, en ef verulegt brot er um að ræða, þá fangelsi, og skal jafnan svo, ef um ítrekað brot er að ræða. En við þetta er bætt einu nýju ákvæði, sem ekki er í núgildandi lögum. Það er ekki sett í frv. af lögfræðingi þeim, sem samdi það, heldur er það sett inn síðar af einhverjum öðrum. Þetta ákvæði snertir eingöngu sjómennina og hljóðar þannig: „Gerist skipstjóri eða skipverji á íslenzku skipi sekur um brot samkv. þessum lið, skal hann skráður úr skiprúmi og sviptur rétti til skipstjórnar eða lögskráningar á íslenzkt skip um tiltekinn tíma, ekki skemur en 6 mán. eða fyrir fullt og allt, ef um mjög stórfellt eða margítrekað brot er að ræða.“ — Hér er tekin upp sérstök tegund refsingar, aðeins gagnvart einni stétt manna í þjóðfélaginu, sjómönnunum. Ofan á þunga sekt eiga þessir menn að ganga atvinnulausir í 6 mán. minnst. Ég fæ ekki séð, hvernig hægt er að réttlæta annað eins og þetta. Því hefir verið skotið að mér, að þetta sé gert sakir þess, að hætta sé á því, að sjómenn, sem sektaðir hafa verið fyrir brot, haldi áfram á eftir að selja áfengi til þess að ná upp sektinni. En ég vil nú spyrja: Er ekki eins mikil hætta á þessu eftir að búið er að láta þá ganga atvinnulausa í 6 mán. til viðbótar sektinni? Ég held einmitt að það sé því meiri hætta á, að þeir haldi áfram að smygla, eftir því sem þeir verða fyrir meira tjóni. Hjá ýmsum skipafélögum hefir það tíðkazt, að láta þá menn fara úr skiprúmi, sem brotlegir hafa gerzt um þessa hluti, og það held ég, að ætti að nægja ofan á sektina.
Þá vil ég ennfremur benda á, að sá, sem gerist brotlegur samkv. þessari grein, má einu sinni ekki leita sér atvinnu á mótorskipi, sem stundar fiskiveiðar kringum landið. Ætti þó ekki að vera hætta á, að hann gæti flutt inn og selt áfengi. Þetta ákvæði verkar bæði óeðlilega og ranglátlega. Ég skal taka sem dæmi, að íslenzkur togaraháseti hefði orðið brotlegur fyrir smyglun og verið auk sektarinnar dæmdur til atvinnumissis í 6 mán. Það gæti farið svo, að þessi maður, sem ef til vill hefði fyrir þungri fjölskyldu að sjá, gæti ekki komizt á „vertíð“, og yrði jafnvel að ganga atvinnulaus. Mætti þá gera ráð fyrir, að fjölskylda hans lenti á vonarvöl. Getur því svo farið, að þetta komi til með að valda þjóðfélaginu miklu tjóni. Sama gegnir og um skipstjóra, sem yrði fyrir þessu. Það gæti farið svo, að hann yrði að sitja í landi alla vertíðina. Slíkt lagaákvæði sem þetta getur því komið illa niður á margan hátt. Þess vegna berum við fram brtt. um að fella þetta ákvæði niður úr frv. Sjómennirnir hafa yfir sér hin þungu sektarákvæði og refsiákvæði, sem í löggjöfinni eru, og virðist slíkt næsta nóg. Ég vænti því, að hv. þdm. sjái, að hér er um sanngjarnt mál að ræða, og samþ. brtt. okkar.